Reglur Ungmennadeildar
Samþykktar af stjórn HRFÍ í ágúst 2022
1. Starfssvið Ungmennadeildar
1. Markmið deildarinnar er að stuðla að góðu starfi meðal barna og ungmenna innan HRFÍ. Starf Ungmennadeildar er sérstaklega ætlað að halda utan um börn og ungmenni á aldrinum 9-20 ára.
2. Æskulýðsnefnd sem fer með málefni Ungmennadeildar skal skipuð 3-5 aðilum í senn, tilnefndum af stjórn HRFÍ.
5. Æskulýðsnefnd getur skipað í starfsnefndir á hinum ýmsu sviðum deildarinnar.
6. Félagar í Ungmennadeild hafa þátttökurétt í því sem deildin býður upp á hverju sinni. Skráning í Ungmennadeild fer fram á skrifstofu HRFÍ.
2. Sýningareglur ungra sýnenda
1. Keppni ungra sýnenda fer fram samkvæmt sýningareglum HRFÍ sem eru í gildi hverju sinni.
2. Komi upp misræmi milli starfsreglna Ungmennadeildar og sýningareglna gilda sýningareglur HRFÍ.
3. Efna má til keppni ungra sýnenda á ræktunarsýningum HRFÍ. Keppni ungra sýnenda er skipt í tvo aldursflokka, 10-12 ára og 13-17 ára. Ungir sýnendur sem verða 10 ára á sýningarárinu geta tekið þátt í yngri flokki ungra sýnenda og út 12. aldursárið (ártalið gildir). Í eldri flokki ungra sýnenda skulu sýnendur vera 13 ára á sýningarárinu og geta þeir tekið þátt út 17. aldursárið (ártalið gildir).
4. Ungum sýnanda er óheimilt að sýna tík sem er að lóða. Starfsfólki sýningar er heimilt að vísa ungum sýnanda frá keppni mæti hann með lóðatík.
5. Sá hundur, sem ungmennið sýnir, verður að vera fullra 9 mánaða á sýningardaginn, ættbókarfærður hjá HRFÍ og uppfylla þær reglur sem HRFÍ setur um sýningu hunda á ræktunarsýningum HRFÍ.
6. Harkaleg meðferð eða refsing á hundi er stranglega bönnuð og getur leitt til brottvísunar úr keppni. Við alvarleg brot má vísa máli viðkomandi til frekari meðferðar sýningastjórnar HRFÍ.
7. Ef hundur sýnir óæskilega hegðun í hring eða á sýningasvæði, svo sem árásargirni gagnvart öðrum hundum, sýnanda eða dómara, eða ef hundurinn er mjög hræddur inni í hringnum, er hægt að vísa hundi út úr hring. Sýnanda gefst í slíkum tilvikum tækifæri að finna annan hund til að sýna.
8. Mæti þátttakandi í ungum sýnendum of seint í keppni skal hringstjóri spyrja dómara hvort viðkomandi megi taka þátt. Það er svo mat dómara hvort sýnandi fái að taka þátt eða ekki.
3. Stigagjöf
Stig, sem gilda fyrir stigahæsta unga sýnanda ársins, eru aðeins gefin á opnum ræktunarsýningum félagsins á viðkomandi almanaksári, þar sem allar hundategundir geta tekið þátt. Stigahæstu ungu sýnendur ársins í yngri og eldri flokki eru heiðraðir á síðustu sýningu hvers árs.
Stigagjöf fyrir unga sýnendur í yngri og eldri flokki:
Stigahæsti ungi sýnandi ársins í eldri flokki er fulltrúi Íslands í alþjóðlegri keppni ungra sýnenda á Crufts í mars árið eftir.
Annar stigahæsti ungi sýnandi ársins í eldri flokki er fulltrúi Íslands á heimssýningu FCI sem haldin er árið eftir.
Þriðji stigahæsti ungi sýnandi ársins í eldri flokki er fulltrúi Íslands á Evrópusýningu FCI sem haldin er árið eftir.
Við sérstakar aðstæður getur réttur til þátttöku gengið niður/neðar á stigalistanum. Þegar það er sérstaklega réttlætanlegt getur stjórn Ungmennadeildar lagt til við stjórn HRFÍ að veita ungum sýnanda, sem hefur aldurs vegna ekki getað tekið þátt sem fulltrúi Íslands í alþjóðlegri keppni, styrk til að sýna í keppni ungra sýnenda á sýningu erlendis.
Stjórn HRFÍ í samráði við stjórn Ungmennadeildar er þó heimilt að velja fulltrúa í stað fjögurra stigahæstu ungu sýnenda ársins geti þeir af einhverjum ástæðum ekki tekið þátt í keppni erlendis sem fulltrúar Íslands.
4. Bráðabani
Ef tveir eða fleiri keppendur eru jafnir að stigum í lok árs í keppninni um stigahæstu ungu sýnendur ársins þarf að efna til bráðabana til að ákvarða um endanlega sætaröðun.
Komi til bráðabana tilnefnir stjórn Ungmennadeildar hlutlausan aðila til að sjá um framkvæmdina ásamt því að velja dómara. Sá aðili, sem sér um framkvæmdina, velur einnig skiptihunda sem sýnendur sýna í bráðabananum.
Dómara skal gerð grein fyrir skipulagi bráðabanans áður en keppni hefst.
Bráðabani fer þannig fram að fyrst sýna keppendur hunda að eigin vali. Næst fá þeir skiptihunda af sömu/svipaðri tegund sem þeir þekkja ekki. Því næst skipta keppendur um skiptihunda þannig að þeir sýni báða skiptihunda í keppninni. Að endingu fá keppendur sína hunda aftur og dómari ákveður sigurvegara.
5. Aðrar reglur
1. Við skráningu á sýningu skal skrá fullt nafn sýnanda, kennitölu, heimilisfang og símanúmer.
2. Farandbikar skal skila með áletrun. Áletrun er greidd af handhafa bikarsins hverju sinni. Skila þarf bikar fyrir keppni/heiðrun stigahæsta sýnanda.
3. Börnum á 9. aldursári er heimilt að taka þátt í æfingum og viðburðum deildarinnar nema annað sé tekið fram.
4. Lágmarksaldur hunda, sem taka þátt í æfingum fyrir unga sýnendur, er 7 mánaða. Ungmennadeild gerir lámarkskröfu um að barn/ungmenni mæti með hund sem hæfir reynslu þátttakanda.
5. Ef ungir sýnendur sýna eða taka þátt í starfi annarra hundaræktarfélaga, sem eru ekki viðurkennd af HRFÍ, getur stjórn Ungmennadeildar vísað málinu til stjórnar HRFÍ. Stjórn HRFÍ getur vísað viðkomandi úr deildinni og/eða bannað viðkomandi að taka þátt í starfi deildarinnar.
6. Leiðbeinendur Ungmennadeildar hafa rétt til að meta slæma/harkalega meðferð barns/ungmennis á hundi og grípa til aðgerða gerist þess þörf. Leiðbeinendur geta veitt viðkomandi viðvörun. Við endurtekin brot getur stjórn Ungmennadeildar vísað málinu til stjórnar HRFÍ sem getur beitt viðkomandi keppnisbanni.
7. Á námskeiðum eða í keppnum, sem haldin eru á vegum Ungmennadeildar í samstarfi við aðrar deildir félagsins, t.d. hundafimi eða hlýðninámskeið, gilda reglur viðkomandi deildar.

- sæti: 40 stig
- sæti: 30 stig
- sæti: 20 stig
- sæti: 10 stig