Dagur Ungmennadeildar HRFÍ og Royal Canin verður haldinn hátíðlegur þann 28. október n.k.
Í þetta skipti verður Landslið Ungra Sýnenda með fjáröflun fyrir Norðurlandamótið sem haldið verður á Íslandi í nóvember! Stelpurnar í landsliðinu munu dæma barna- og fullorðinsflokka og munu þau skráningargjöld fara beint til styrktar landsliðsins! Boðið verður upp á: Barnaflokkur 3-5 ára (fjáröflun f. landslið) Dómari: Eyrún Eva Guðjónsdóttir Barnaflokkur 6-9 ára (fjáröflun f. landslið) Dómari: Hrönn Valgeirsdóttir Yngri flokkur 10-12 ára Dómari: Ingunn Birta Ómarsdóttir Eldri flokkur 13-17 ára Dómari: Ingunn Birta Ómarsdóttir Fullorðins flokkur 18-34 ára (fjáröflun f. landslið) Dómari: Jóhanna Sól Ingadóttir Fullorðins flokkur 35+ ára (fjáröflun f. landslið) Dómari: Freyja Guðmundsdóttir Stefnum á að byrja daginn kl 9:30-10:00, fer eftir fjölda skráninga! Þátttökugjöld: Barnaflokkar (yngri og eldri) 1.500kr Ungir sýnendur (yngri og eldri) 2.000kr Fullorðinsflokkur (yngri og eldri) 2.500kr Staðsetning: Melabraut 17, Hfj, húsnæði HRFÍ Tímasetning auglýst síðar SKRÁNING HÉR Ungmennadeildin ætlar að bjóða krökkum og ungmennum á aldrinum 9-17 ára að koma á fræðslu og skemmtikvöld!
Við ætlum að vera með fræðslu um byggingu hunda, tegundahópa, fá okkur pizzu, spila og eiga góða stund saman! Þetta er foreldra og hunda laust kvöld. Veitingar eru í boði deildarinnar. Hlökkum til að sjá ykkur öll! SKRÁNING HÉR |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|