World dog show 2023
Maríus Þorri Ólason keppti fyrir hönd Íslands á Heimsýningunni í Genivíu, Sviss. Dómarinn var Jason Hoke.
Maríus keppti með Bracco Italiano sem heitir Fudge.
Það sem við erum stolt af honum Maríus Þorra sem komst í topp 6 á Heimssýningunni í Genívu!
Hann og Fudge mynduðu flott teymi! Óskum Maríus innilega til hamingju með þennan flotta árangur

World dog show 2019
Þar sem Heimssýningin er haldin í Kína þetta árið fer 2. stigahæsti sýnandi ársins á Evrópusýninguna og fékk þriðji stigahæsti sýnandi ársins styrk til að fara á sýningu að eigin vali og keppa í ungum sýnendum.
World dog show 2018
Helgina 9. - 12. ágúst fór fram Heimsýningin í Amsterdam í Hollandi. Þar átti Ísland tvo keppendur í opnu keppnunum og fulltrúa Íslands í úrslitunum á sunnudeginum.
Vaka Víðisdóttir og Stefanía Stella Baldursdóttir kepptu í opnu keppnunum á föstudeginum, laugardeginum og sunnudeginum með góðum árangri. Stefanía Stella sýndi hund af tegundinni tíbet spaníel og komst tvisvar sinnum í undanúrslit og Vaka Víðisdóttir sýndi ástralskan fjárhund og komst í 10 keppenda úrslit á sunnudeginum. Frábær árangur hjá þeim!

Á sunnudeginum keppti fulltrúi Íslands, Ingunn Birta Ómarsdóttir, í úrslitunum. Dómari keppninnar var Zeljka fon Zidar frá Slóveníu. Hún sýndi rakkan Legolas af tegundinni White Swiss Shepherd. Ingunn stóð sig með glæsibrag og komst alla leið í 10 keppenda úrslit af yfir 40 keppendum! Frábær endir á ungra sýnenda ferli hennar.
World Dog Show 2017
Helgina 10. - 12. nóvember fór fram Heimssýningin í Leipzig í Þýskalandi. Ísland átti þar tvo keppendur en það voru þær Elena Mist Theodórsdóttir og Stefanía Stella Baldursdóttir.
Stefanía Stella tók þátt í undankeppnum sem fóru fram alla dagana með jack russel terrier. Á laugardeginum náði hún þeim frábæra árangri að vera valin, ásamt tveimur öðrum sýnendum, til að taka þátt í aðalkeppninni sem fór fram á síðasta degi sýningarinnar. Á sunnudeginum fór hún svo í forval, ásamt öllum þeim sem höfðu komist áfram í undankeppnunum. Þar voru valdir fimm sýnendur en Stefanía Stella var ekki meðal þeirra. Við óskum henni innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur!
Í úrslitunum keppti Elena Mist fyrir Íslands hönd með silky terrier. Í lokakeppninni tóku fulltrúar fjölmargra þjóða þátt ásamt þeim fimm sýnendum sem komust áfram úr undankeppnunum. Elena Mist gerði lítið fyrir sér og komst áfram í topp 10! Innilega til hamingju með frábæran árangur, Elena!
Dómarinn í lokakeppninni var Liz Cartlidge frá Bretlandi.

World Dog Show 2015
Hafdís Jóna Þórarinsdóttir var fulltrúi Íslands í lokakeppni ungra sýnenda á heimssýningunni í Mílanó, Ítalíu sem fór fram 14. júní sl. en hún vann sér inn keppnisrétt þar sem hún var annar stigahæsti ungi sýnandinn í eldri flokki eftir árið 2014.
Dómari að þessu sinni var Hugo Quevedo. Í lokakeppninni að þessu sinni voru 43 keppendur, þar af hafði 31 land sent fulltrúa sinn og auk þess höfðu 12 keppendur unnið sér inn þátttökurétt yfir dagana sem sýningin stóð.
Hafdís keppti með flat-coated retriever-rakkann Noris sem hún fékk lánaðan sama dag og keppnin var. Hafdís stóð sig einstaklega vel og var okkar félagi til sóma!

World Dog Show 2014
Hilda Björk Friðriksdóttir var fulltrúi Íslands í lokakeppni unga sýnenda á heimssýningunni sem lauk 11. ágúst sl. í Helsinki, Finnlandi. Hún keppti með standard schnauzer rakkann Boston. Dómari keppinnar var Juha Palosaari en tæplega 30 lönd sendu fulltrúa sína til keppni og náðu svo 9 krakkar að öðlast þátttökurétt í lokakeppnina hvern dag sýningarinnar, en íslenskur ungur sýnandi keppti í þeirri keppni um þátttökurétt en það var hún Elena Mist Theodórsdóttir sem stóð sig með sóma.
Hilda stóð sig einstaklega vel og var Íslandi til sóma! |
World Dog Show 2013
Erna Sigríður Ómarsdóttir var fulltrúi Íslands í lokakeppni ungra sýnenda á World Winner sýningunni sem fram fór í Búdapest, Ungverjalandi í 19. maí 2013. Dómari var Mrs. Liz Cartledge frá Englandi.
Erna sýndi tík af tegundinni shetland sheepdog og stóð sig með miklum sóma. Þess má geta að tæplega 30 lönd sendu fulltrúa í keppnina. Auk þeirra voru 16 þátttakendur sem öðluðust þátttökurétt í lokakeppnina en fjórir keppendur komust áfram hvern dag sýningarinnar í almennri keppni ungra sýnenda, í þeirri keppni keppti Hilda Björk Friðriksdóttir með 3 mismunandi hunda og stóð sig með sóma með þá alla.

World Dog Show 2012
Í ár keppti Theodóra Róbertsdóttir í Salzburg í Austurríki í maí. Theodóra fékk hund lánaðann frá íslandsvininum Hugo Quevedo en hundurinn sem hún sýndi var af tegundinni Standard Wire-haired Dachshund.