Miðnætursýning fjár- og hjarðhundadeildar var haldinn 20. júní sl. og var boðið upp á keppni ungra sýnenda með hunda af þeim tegundum sem tilheyrðu deildinni. Sameinað var í einn keppnisflokk og dómari var Steinunn Camilla Stones. Ath. þessi sýning gildir EKKI til stiga í lok árs. Úrslit: 1.sæti - Ingunn Birta Ómarsdóttir með shetland sheepdog 2.sæti - Védís Huld Sigurðardóttir með australian shepherd 3.sæti - Stefanía Stella Baldursdóttir með old english sheepdog 4.sæti - Birgitta Ýr Bjarkadóttir með australian shepherd Við þökkum Fjár- og hjarðhundadeildinni fyrir að leyfa ungum sýnendum að vera með og óskum verðlaunahöfum til hamingju með árangurinn! Hafdís Jóna Þórarinsdóttir var fulltrúi Íslands í lokakeppni ungra sýnenda á heimssýningunni í Mílanó, Ítalíu sem fór fram 14. júní sl. en hún vann sér inn keppnisrétt þar sem hún var annar stigahæsti ungi sýnandinn í eldri flokki eftir árið 2014.
Dómari að þessu sinni var Hugo Quevedo. Í lokakeppninni að þessu sinni voru 43 keppendur, þar af hafði 31 land sent fulltrúa sinn og auk þess höfðu 12 keppendur unnið sér inn þátttökurétt yfir dagana sem sýningin stóð. Hafdís sýndi flat-coated retriever-rakkann Noris sem hún fékk lánaðan sama dag og keppnin var. Hún stóð sig einstaklega vel og var okkar félagi til sóma! |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|