Dagur Unglingadeildar HRFÍ var haldinn hátíðlegur í dag og voru fjölmargir sem lögðu leið sína í Gæludýr.is á Korputorgi til að taka þátt í fjörinu! Fjölmörg börn voru skráð í barnaflokka 3-5 ára og 6-8 ára og fengu allir þátttakendur rósettu og þátttökuverðlaun. Dómari barnaflokks 3-5 ára var Hilda Björk Friðriksdóttir og í 6-8 ára Helga Þöll Guðjónsdóttir. Það er óhætt að segja að börnin og hundarnir hafi skemmt sér vel og notið sín í hringnum! Greinilega framtíðarsýnendur þarna á ferð! Keppt var í yngri og eldri flokki ungra sýnenda en dómari beggja flokka var Ágústa Pétursdóttir. Einnig var keppt í flokki 18 ára og eldri og var dómari Auður Sif Sigurgeirsdóttir. Í öllum flokkum voru hæfileikar sýnendanna dæmdir og var keppnin svo sannarlega mjög hörð og erfitt að velja á milli sýnenda. Stjórn deildarinnar þakkar öllum styrktaraðilum fyrir velvild í garð deildarinnar en þeir voru: Dýrheimar ehf., Gæludýr.is, Petco, Dekurdýr, Lífland, Bed Head og Bílapartar Við þökkum ykkur kærlega fyrir frábæran dag og vonumst til að æfingasýningar sem þessar verði reglulega á dagskrá hjá deildinni! Yngri flokkur: 1. sæti - Stefanía Stella Baldursdóttir með pug 2. sæti - Erlen Inga Guðmundsdóttir með papillon 3. sæti - Gunnhildur Hekla Gunnarsdóttir með standard schnauzer 4. sæti - Katrín Ósk Ástþórsdóttir með íslenskan fjárhund Eldri flokkur: 1. sæti - Ingunn Birta Ómarsdóttir með shetland sheepdog 2. sæti - Vaka Víðisdóttir með siberian husky 3. sæti - Hafdís Jóna Þórarinsdóttir með german shepherd 4. sæti - Sigrún Sandra Valdimarsdóttir með papillon 18 ára og eldri: 1. sæti - Valdís Vignisdóttir með afghan hound 2. sæti - Karen Ösp Guðbjartsdóttir með papillon 3. sæti - Arnfríður Tanja Hlynsdóttir með american cocker spaniel 4. sæti - Elín Rós Hauksdóttir með weimaraner Hægt er að sjá myndirnar stærri með því að ýta á þær. Einnig eru fleiri myndir að finna á Facebook síðu deildarinnar HÉR
|
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|