Keppni ungra sýnenda á júlísýningu HRFÍ fór fram föstudagskvöldið 22. júlí sl. Dómari að þessu sinni var Ásta María Guðbergsdóttir en 19 ungmenni tóku þátt.
Yngri flokkur: 1. sæti - Hrönn Valgeirsdóttir með íslenskan fjárhund - 40 stig 2. sæti - Lilja Ýr Árdal Alfreðsdóttir með ladrador - 30 stig 3. sæti - Snærún Ynja Halldórsdóttir með labrador - 20 stig 4. sæti - Karína Ísis Pétursdóttir með chinese crested - 10 stig Eldri flokkur: 1. sæti - Hafdís Jóna Þórarinsdóttir með enskan springer spaniel - 40 stig 2. sæti - Vaka Víðisdóttir með siberian husky - 30 stig 3. sæti - Berglind Gunnarsdóttir með siberian husky - 20 stig 4. sæti - Elena Mist Theodórsdóttir með silky terrier - 10 stig Hægt er að smella á myndirnar til að sjá þær stærri en fleiri myndir er hægt að finna HÉR! Ungmennadeild HRFÍ kynnir með stolti dómara ungra sýnenda á septembersýningu HRFÍ, 2. september nk.
Hilde Fredriksson frá Finnlandi mun dæma keppni ungra sýnenda en hún er með gríðarlega mikla reynslu og þekkingu á sportinu. Hilde naut mikillar velgengni á sínum ferli sem ungur sýnandi og má helst nefna eftirfarandi hápunkta: - Sigurvegari ungra sýnenda á heimssýningunni í Frakklandi 2011 - Átta sýnenda úrslit á Crufts 2011 - Sigurvegari lokakeppni ungra sýnenda í Finnlandi 2010 - Sigurvegari í einstaklingskeppni á Nordic Winner 2009 Hilde mun svo halda námskeið fyrir unga sýnendur á mánudagskvöldið 5. september sem verður í boði hennar og Ungmennadeildar. Staðsetning og nákvæm tímasetning verða auglýst síðar. Við hvetjum ykkur öll til að skrá ykkur sem fyrst á septembersýninguna og gæta þess að missa ekki af þessu frábæra tækifæri! |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|