Nú er sýningarárið 2016 er á enda og liggja fyrir lokastig um stigahæstu ungu sýnendur ársins.
Stigahæstu fimm sýnendurnir í yngri flokki eru eftirfarandi: 1. Hrönn Valgeirsdóttir með 130 stig 2.-3. Erlen Inga Guðmundsdóttir með 50 stig 2.-3. Snærún Ynja Hallgrímsdóttir með 50 stig 4.-5. Kolbrún Jara Birgisdóttir með 40 stig 4.-5. Lilja Ýr Árdal Alfreðsdóttir með 40 stig Stigahæstu fjórir sýnendurnir í eldri flokki eru eftirfarandi: 1. sæti - Hafdís Jóna Þórarinsdóttir með 120 stig - Fulltrúi Íslands á Crufts 2017 2. sæti - Elena Mist Theodórsdóttir með 90 stig - Fulltrúi Íslands á Heimssýningunni 2017 3. sæti - Berglind Gunnarsdóttir með 80 stig - Fulltrúi Íslands á Evrópusýningunni 2017 4. sæti - Vaka Víðisdóttir með 70 stig Hafdís, Elena, Berglind og Vaka mynduðu einnig Nordic Winner liðið sem keppti á Nordic Winner í Danmörku 5. nóvember sl., hægt að sjá nánari umfjöllun HÉR Óskum þeim öllum innilega til hamingju og óskum þeim góðs gengis á keppnunum úti! Keppni ungra sýnenda á nóvembersýningu HRFÍ fór fram föstudagskvöldið 11. nóvember sl. Dómari að þessu sinni var Svante Frisk frá Svíþjóð en 29 ungmenni tóku þátt.
Yngri flokkur: 1. sæti - Kolbrún Jara Birgisdóttir með íslenskan fjárhund - 40 stig 2. sæti - Día Rós Óskarsdóttir með síðhærðan dachshund - 30 stig 3. sæti - Hrönn Valgeirsdóttir með íslenskan fjárhund - 20 stig 4. sæti - Herdís Heiða Jing Guðjohnsen með papillon - 10 stig Eldri flokkur: 1. sæti - Elena Mist Theodórsdóttir með silky terrier - 40 stig 2. sæti - Berglind Gunnarsdóttir með siberian husky - 30 stig 3. sæti - Lovísa Helenudóttir með whippet - 20 stig 4. sæti - Vaka Víðisdóttir með australian shepherd - 10 stig Hægt er að smella á myndirnar til að sjá þær stærri en fleiri myndir er hægt að finna HÉR! Nordic Winner 2016 fór fram í Herning, Danmörku helgina 5.-6. nóvember. Þær, sem mynduðu lið HRFÍ í ár, voru Hafdís Jóna Þórarinsdóttir, Berglind Gunnarsdóttir, Elena Mist Theodórsdóttir og Vaka Víðisdóttir. Þjálfari og liðsstjóri var Auður Sif Sigurgeirsdóttir.
Stúlkurnar kepptu laugardagsmorguninn 5. nóvember kl. 9:00 og fóru inn í úrslit kl.13:00. Keppendur fengu að hitta hundana sem þær sýndu klukkutíma fyrir keppni. Hafdís sýndi enskan springer spaniel, Berglind siberian husky, Elena irish soft coated wheaten terrier og Vaka siberian husky. Dómari keppninnar var Shaun Watson frá Kýpur. Keppt var bæði í einstaklings- og liðakeppni og stóðu stúlkurnar sig frábærlega og urðu í 3. sæti í liðakeppninni! Við óskum íslenska liðinu innilega til hamingju og voru þær HRFÍ til mikils sóma! |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|