Unglingadeild HRFÍ mun bjóða upp á sýningarþjálfun á afmælishátíð HRFÍ, sem verður haldin í TM reiðhöllinni í Víðidal, þar sem sýningin mun fara fram næst komandi helgi. Við munum bjóða upp á þjálfun í hringjum hallarinnar. TAKMARKAÐ PLÁSS!! Unglingadeild HRFÍ mun standa fyrir sýnendanámskeiði miðvikudaginn 15. október næst komandi. Leiðbeinandi námskeiðsins verður Tammie Sommerson Wilcox frá Bandaríkjunum. Boðið verður upp á námskeið fyrir nokkuð vana sýnendur og mun námskeiðið taka tvo tíma. Takmarkað pláss er í boði og námskeiðið mun kosta 5000 kr. og fer allur ágóði til deildarinnar þar sem Tammie hefur ákveðið að styrkja starf Unglingadeildarinnar. Tammie mælir með því að þeir sem hafa tök á mæti með tvo hunda þar sem þetta er tveggja tíma námskeið og hundarnir verða yfirleitt þreyttir. Tammie hefur verið að sýna hunda í um 40 ár af öllum tegundum en hún ólst upp með þýskum fjárhundum en ræktar núna papillon og pembroke welsh corgi ásamt manninum sínum John Wilcox. Þau vinna sem AKC professional handler-ar og eiga hundahótelið Win-Star Bed&biscuit. Fullt er á námskeiðið!! Skráning á biðlista fer fram á [email protected]! Hilda Björk Friðriksdóttir var fulltrúi Íslands í lokakeppni unga sýnenda á heimssýningunni sem 11. ágúst sl. í Helsinki, Finnlandi. Hún keppti með standard schnauzer rakkann Boston. Dómari keppinnar var Juha Palosaari en tæplega 30 lönd sendu fulltrúa sína til keppni og náðu svo 9 krakkar að öðlast þátttökurétt í lokakeppnina hvern dag sýningarinnar, en íslenskur ungur sýnandi keppti í þeirri keppni um þátttökurétt en það var hún Elena Mist Theodórsdóttir sem stóð sig með sóma.
Hilda stóð sig einstaklega vel og var Íslandi til sóma! Sýningarþjálfun Unglingadeildar fyrir september sýningu HRFÍ!
ATHUGIÐ!! Í þetta skiptið verða þjálfanir staðsettar í bílastæðakjallara HOLTAGARÐA en UNGIR SÝNENDUR í Gæludýr.is KORPUTORGI! |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|