Keppni ungra sýnenda fór fram 24. maí sl. á maísýningu HRFÍ. 25 ungmenni voru skráð. Dómari að þessu sinni var Lena Stålhandske frá Svíþjóð.
Yngri flokkur: 1. sæti - Sigrún Sandra Valdimarsdóttir með Papillon 2. sæti - Íris Anna Úlfarsdóttir með Afghan Hound 3. sæti - Elsa Lind Þorvaldsdóttir með Íslenskan fjárhund 4. sæti - Breki Freyr Albertsson með Labrador Eldri flokkur: 1. sæti - Erna Sigríður Ómarsdóttir með Tibet Spaniel 2. sæti - Theodóra Róbertsdóttir með Australian Shepherd 3. sæti - Hilda Björk Friðriksdóttir með Standard Schnauzer 4. sæti - Ylfa Dögg Ástþórsdóttir með Papillon Erna Sigríður Ómarsdóttir var fulltrúi Íslands í lokakeppni ungra sýnenda á World Winner sýningunni sem fram fór í Búdapest, Ungverjalandi í 19. maí 2013. Dómari var Mrs. Liz Cartledge frá Englandi.
Erna sýndi tík af tegundinni shetland sheepdog og stóð sig með miklum sóma. Þess má geta að tæplega 30 lönd sendu fulltrúa í keppnina. Auk þeirra voru 16 þátttakendur sem öðluðust þátttökurétt í lokakeppnina en fjórir keppendur komust áfram hvern dag sýningarinnar í almennri keppni ungra sýnenda, í þeirri keppni keppti Hilda Björk Friðriksdóttir með 3 mismunandi hunda og stóð sig með sóma með þá alla. Það var boðið upp á keppni ungra sýnenda á deildarsýningu fjár- og hjarðhundadeildar HRFÍ sem fór fram 4. maí síðast liðinn. Keppendur þurftu að keppa með hunda sem komu úr tegundahópi 1.
Þessi keppni telur EKKI til stiga! Dómari var Svava Arnórsdóttir og einungis var keppt í einum flokk 10-17 ára. 1. sæti - Jóhanna Líf Halldórsdóttir með Australian Shepherd 2. sæti - Hilda Björk Friðriksdóttir með Australian Shepherd 3. sæti - Erna Sigríður Ómarsdóttir með Australian Shepherd 4. sæti - Ingunn Birta Ómarsdóttir með Australian Shepherd |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|