Hilda Björk Friðriksdóttir var fulltrúi Íslands í lokakeppni unga sýnenda á heimssýningunni sem 11. ágúst sl. í Helsinki, Finnlandi. Hún keppti með standard schnauzer rakkann Boston. Dómari keppinnar var Juha Palosaari en tæplega 30 lönd sendu fulltrúa sína til keppni og náðu svo 9 krakkar að öðlast þátttökurétt í lokakeppnina hvern dag sýningarinnar, en íslenskur ungur sýnandi keppti í þeirri keppni um þátttökurétt en það var hún Elena Mist Theodórsdóttir sem stóð sig með sóma.
Hilda stóð sig einstaklega vel og var Íslandi til sóma! Erna Sigríður Ómarsdóttir var fulltrúi Íslands í lokakeppni ungra sýnenda á World Winner sýningunni sem fram fór í Búdapest, Ungverjalandi í 19. maí 2013. Dómari var Mrs. Liz Cartledge frá Englandi.
Erna sýndi tík af tegundinni shetland sheepdog og stóð sig með miklum sóma. Þess má geta að tæplega 30 lönd sendu fulltrúa í keppnina. Auk þeirra voru 16 þátttakendur sem öðluðust þátttökurétt í lokakeppnina en fjórir keppendur komust áfram hvern dag sýningarinnar í almennri keppni ungra sýnenda, í þeirri keppni keppti Hilda Björk Friðriksdóttir með 3 mismunandi hunda og stóð sig með sóma með þá alla. |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|