ATHUGIÐ - FULLT ER Á NÁMSKEIÐIÐ - HÆGT ER AÐ SKRÁ Á BIÐLISTA Á NETFANGIÐ OKKAR: [email protected]
Þá fer að líða að næsta námskeiði. Í samstarfi við Ungmennadeild mun Erna Sigríður Ómarsdóttir, dómari á síðustu sýningu, halda námskeið fyrir unga sýnendur. Erna er sjálf fyrrum ungur sýnandi með mikla reynslu og þekkingu til að miðla til áhugsamra ungra sýnenda. TAKMARKAÐ PLÁSS! Námskeiðið er tvö skipti: Laugardagur 22. október kl. 13-14 Sunnudagur 23. október kl. 13-14 Áætlaður námskeiðstími er ein klst. hvorn daginn. Athugið að ef skráning er mikil gætum við þurft að skipta hópnum í tvennt og yrði næsti hópur þá kl. 14-15. Staðsetning: Blíðubakkahúsið Þátttökugjald: 6.000 kr. Skráningafrestur er til fimmtudagsins 20. október eða þar til námskeiðið fyllist. Til þess að skráning teljist gild þarf að fylgja millifærsla! Reikningur 515-26-680481, kt. 680481-0249, setja nafn þátttakanda í skýringu og senda kvittun á [email protected]! Þar sem takmarkaður fjöldi kemst á námskeiðið verður farið eftir greiðslum þegar tekið er á móti skráningunum. Mikilvægt er að börnin mæti með hunda sem þau hafa stjórn á á námskeiðið og hafa náð amk. 9 mánaða aldri!!
Gerdur Steinarsdottir
14/10/2022 10:50:35 am
Steinarr Breki
Gerdur Steinarsdottir
14/10/2022 10:55:45 am
Elsa Lovísa Comments are closed.
|
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|