Ungmennadeild ætlar að bjóða uppá námskeið fyrir unga sýnendur í nóvember, námskeiðið hentar bæði byrjendum og lengra komnum. Verklegi hluti námskeiðsins verður haldinn eftirfarandi daga, kl. 19-20 í reiðhöllinni í Víðidal: Mánudaginn 1. nóvember Miðvikudaginn 3. nóvember Mánudaginn 8. nóvember Fræðslukvöld verður mánudaginn 15. nóvember, nánari upplýsingar þegar nær dregur. Námskeiðsverðið er 6.000 kr. og innifalið í því eru þessi þrjú verklegu skipti ásamt fræðslukvöldi og pizza veislu þar. Taka skal fram að allur ágóði af námskeiðinu rennur beint til deildarinnar og er því fjáröflun fyrir starf deildarinnar. Við hverjum alla unga sýnendur 9-17 ára (ártalið gildir) til að skrá sig á námskeiðið! Millifæra skal námskeiðsgjaldið á reikning deildarinnar hjá HRFÍ: Reikningur 515-26-680481, kt. 680481-0249, setja nafn þátttakanda í skýringu og senda kvittun á [email protected]! ATH: Skráning telst ekki gild fyrr en greiðsla hefur borist.t. sath - ATH! - FULLT ER Á NÁMSKEIÐIÐ! Þann 23. október næstkomandi verður hinn árlegi dagur ungmennadeildar endurtekinn! Í þetta sinn fögnum við 20 ára afmæli deildarinnar og samstarfi okkar með Royal Canin Íslandi! Skráningarfrestur til miðnættis 15. október nk.! Munum við bjóða upp á barnaflokka, keppni ungra sýnenda og match show! Match show er gamni keppni þar sem 2-4 hundar koma inn í hring með sýnanda sínum og besta parið fer áfram í úrslit, match show er óformleg keppni gerð til þess að hafa gaman, umhverfisþjálfa hundana og æfa sig sem sýnanda. Fjöldi hunda og frekari framkvæmd fer eftir fjölda skráninga. Allir yfir 13 ára aldri geta skráð sig í keppnina, óháð reynslu. Dregið er á staðnum í holl og er par valið úr hverju holli áfram í úrslit. Hægt er að skrá sig með nokkra hunda - eina krafan er að hundurinn sé með ættbók frá HRFÍ. Flokkar í boði og skráningargjald: 3-5 ára barnaflokur (1.500,- kr) 6-9 ára barnaflokkur (1.500,- kr) Yngri flokkur ungra sýnenda (2.000,- kr) Eldri flokkur ungra sýnenda (2.000,- kr) Match show - skráningargjald 2.500,- kr Hvolpaflokkur (3-9 mánaða) Ungliðar og unghundar (9-24 mánaða) Opinn flokkur (24 mánaða - 7 ára) Öldungar (8 ára + ) Einnig verður kynning á Rallý hlýðni á sýningunni sem er frábært sport fyrir hunda á öllum aldri og eigendur þeirra! ATH - UPPLÝSINGAR UM SKRÁNINGU OG GREIÐSLU HÉR FYRIR NEÐAN! Skráning fer fram á forminu hér að neðan, og millifæra skal á reikning 515-26-680481, kt, 680481-0249, setja skal nafn þátttakanda í skýringu og senda kvittun á [email protected] til þess að skráning teljist gild. Ath! Krafa er að hundarnir sem taki þátt í ungum sýnendum eða match show séu með ættbók frá Hundaræktarfélagi Íslands. Hundar í keppni ungra sýnenda þurfa að hafa náð 9 mánaða aldri. Taka má þátt með gelda hunda í báðum viðburðum. Keppni ungra sýnenda telur EKKI til stiga. SKRÁNINGU ER LOKIÐ
|
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|