Keppni ungra sýnenda á febrúarsýningu HRFÍ fór fram í kvöld, þann 27. febrúar, og var haldin á sýningarsvæðinu á Smáratorgi. Að þessu sinni voru 25 ungmenni skráð til keppni, 6 í ynrgi og 17 í eldri flokk. Dómri var Matin Johansson frá Svíþjóð.
Yngri flokkur: 1. sæti - Erlen Inga Guðmundsdóttir með papillon - 40 stig 2. sæti - Elena Mist Theodórsdóttir með silky terrier - 30 stig 3. sæti - Stefanía Stella Baldursdóttir með pug - 20 stig 4. sæti - Védís Huld Sigurðardóttir með australian shepherd - 10 stig Eldri flokkur: 1. sæti - Margrét Hauksdóttir mep afghan hound - 40 stig 2. sæti - Hafdís Jóna Þórarinsdóttir með standard schnauzer - 30 stig 3. sæti - Ylfa Dögg Ástþórsdóttir með papillon - 20 stig 4. sæti - Diljá Björk Atladóttir með breton - 10 stig Sýningarþjálfanir eru stór hluti af fjáröflun unglingadeildar. Með ágóða sýningarþjálfana sem Unglingadeild hefur fengið að halda í Gæludýr.is auk styrkja frá Pedigree og Dýrheimum, og ekki síst með dyggri aðstoð og skipulagningu HRFÍ getur unglingadeild sent fulltrúa Íslands á sýningar erlendis.
Við viljum þakka öllum styrktaraðlilum fyrir að gera okkur kleift að senda keppendur út. Árangurinn hefur verið frábær og keppendur sýnt að við erum á heimsmælikvarða. Skiptið í sýningarþjálfun kostar 500 kr. og rennur það óskipt til Unglingadeildar, ekki þarf að skrá á þjálfunina. Minnum á að mikilvægt er að mæta með sýningartaum, nammi/dót fyrir hundinn, skítapoka og góða skapið! |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|