Unglingadeild HRFÍ mun standa fyrir sýnendanámskeiði miðvikudaginn 15. október næst komandi. Leiðbeinandi námskeiðsins verður Tammie Sommerson Wilcox frá Bandaríkjunum. Boðið verður upp á námskeið fyrir nokkuð vana sýnendur og mun námskeiðið taka tvo tíma. Takmarkað pláss er í boði og námskeiðið mun kosta 5000 kr. og fer allur ágóði til deildarinnar þar sem Tammie hefur ákveðið að styrkja starf Unglingadeildarinnar. Tammie mælir með því að þeir sem hafa tök á mæti með tvo hunda þar sem þetta er tveggja tíma námskeið og hundarnir verða yfirleitt þreyttir. Tammie hefur verið að sýna hunda í um 40 ár af öllum tegundum en hún ólst upp með þýskum fjárhundum en ræktar núna papillon og pembroke welsh corgi ásamt manninum sínum John Wilcox. Þau vinna sem AKC professional handler-ar og eiga hundahótelið Win-Star Bed&biscuit. Fullt er á námskeiðið!! Skráning á biðlista fer fram á [email protected]! Í janúar munum við fá Theodóru, stigahæsta unga sýnandann 2013 til þess að halda smá námskeið fyrir ungu sýnendurna! Verður námskeiðinu skipt í bæði bóklegan og verklegan hluta. Bóklegi hlutinn verður haldinn á skrifstofu HRFÍ á virkum degi fyrir verklega hlutann. - Boðið verður upp á léttar veitingar og drykki Verð: 1500kr, allur ágóði af námskeiðinu fer beint til Unglingadeildar Nánari upplýsingar á mynd eða í skilaboðum. Skráning á [email protected] - nafn -flokkur -tegund -sími Með von um góðar undirtektir -stjórn Unglingadeildar Nú eru tæplega tveir mánuðir í næstu sýningu og ætlar unglingadeildin að bjóða upp á sýningarnámskeið helgina 12. – 13. október. Tímarnir eru 1,5 tími hvorn daginn og boðið upp á byrjendahóp og framhaldshóp. Námskeiðið verður meira uppsett sem almenn kennsla á hvað við gerum til að bæta hundinn og hvernig aðferðir og hvernig við komum hundinum best á framfæri. Mun ítarlega en sýningarþjálfanir en jafnframt góður grunnur til að bæta sig svo á þjálfunum sem koma á eftir. Þjálfari verður Theodóra Róbertsdottir
Byrjendur (óvanir) fara vel í grunninn, tilgang fígúranna, sýningarskipulag og ástæður fyrir því sem við gerum á sýningum ásamt því að kynna helstu aðferðir og undirbúning fyrir sýningu. Framhald (vanir) fara í að læra meiri tix sem hægt er að notast við hunda sem sýnandi sýnir í framtíðinni, nemendur læra af hvor öðrum og unnið undir meiri pressu. Námskeiðið er hugsað fyrir hinn almenna sýnanda og verður takmarkaður fjöldi. Skráningargjald er 2000kr og fer skráning fram á [email protected] og þar þarf að koma fram nafn, tegund hunds/hunda, í hvorum hópnum þið tilheyrið og netfang. |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|