Sýningarþjálfun á vegum Unglingadeildarinnar hefst sunnudaginn 5.febrúar og verður haldin Í PLÁSSINU HÆGRA MEGIN VIÐ GÆLUDÝR.IS!
Sunnudagurinn 5. febrúar Kl.13-14 : Ungir sýnendur Kl. 14-15: Stórir hundar Kl. 15-16: Litlir hundar Sunnudagurinn 12.febrúar Kl. 13-14: Ungir sýnendur Kl. 14-15: Grúbbur 1,2 og 7 Kl. 15-16: Grúbbur 3,5 og 9 Kl. 16-17: Grúbbur 8, 4/6 og 10 Sunnudagurinn 19.febrúar Kl. 13-14: Ungir sýnendur Kl. 14-15: Grúbbur 1,2 og 7 Kl. 15-16: Grúbbur 3,5 og 9 Kl. 16-17: Grúbbur 8, 4/6 og 10 Veistu ekki hvaða grúbbu hundurinn þinn er í ? Kíktu hér: http://www.hrfi.is/Default.asp?page=294 Mikilvægt er að fólk taki með sér kúkapoka, sýningartaum og nammi/dót fyrir hundinn. Að venju kostar hvert skipti 500 kr.- og rennur sá peningur óskiptur til þess að styrkja keppendur Unglingadeildarinnar erlendis. En Unglingadeildin með dyggri aðtoð HRFÍ, Pedigree og Royal Canin senda fulltrúa á helstu sýningar erlendis. Sá ungi sýnandi sem er stigahæstur eftir árið í eldri flokk keppir á Crufts. Annar stigahæsti ungi sýnandinn í eldri flokk keppir á Heimssýningunni og þriðji stigahæsti ungi sýnandinn í eldri flokk keppir á Evrópusýningunni. Síðan fer lið skipað fjórum stigahæstu ungu sýnendunum úr eldri flokk á Norðurlandakeppni ungra sýnenda. Við viljum einnig koma því á framfæri hversu vel okkar keppendum gekk á Norðurlandakeppninni í desember 2011 en okkar lið varð í öðru sæti, þrjár af fjórum í liðinu komust svo í TOP 10 í einstaklingskeppninni og Elín Rós Hauksdóttir endaði svo í 2. sæti í einstaklingskeppninni!! Þetta er frábær árangur hjá lítilli þjóð einnig vegna þess hve litla reynslu okkar keppendur hafa samanborið við hin löndin! ATH. - Mikilvægt er að mæta á réttum tíma svo æfingarnar geti byrjað á tilsettum tíma. Hlökkum til að sjá ykkur! Bestu kveðjur, Stjórn Unglingadeildar HRFÍ. 28.Janúar nk. ætlar Unglingadeild að endurtaka leikinn frá því síðast og halda aftur æfingarkeppni með happdrætti og bjóðum uppá kökur.
Dómari er Ásta María Guðbergsdóttir og verður keppnin haldin í Gæludýr.is kl 14:00 - hefst á yngri flokk. Vonumst til að sjá sem flesta! |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|