Dagur Ungmennadeildar verður haldinn hátíðlegur sunnudaginn 15. apríl í reiðhöll Andvara. Kaffisala verður á staðnum í umsjón deildarinnar en við verðum því miður ekki með posa. Keppt verður í flokkum barna, ungra sýnenda og eldri sýnenda og verða flokkarnir eftirfarandi: - Börn 3-5 ára - Börn 6-8 ára - Yngri flokkur ungra sýnenda 9-12 ára - Eldri flokkur ungra sýnenda 13-17 ára - Fullorðinsflokkur 18-34 ára - Fullorðinsflokkur 35 ára og eldri Þátttökugjald í barnaflokkum: 1.500.- kr. Þátttökugjald í ungum sýnendum og fullorðinsflokkum: 2.000.- kr. Þátttökuverðlaun veitt í barnaflokkum og ungum sýnendum! Dómari í barnaflokkum verður Ingunn Birta Ómarsdóttir Dómari í ungum sýnendum verður Hildur Sigrún Guðbrandsdóttir Dómari í fullorðinsflokkum verður Auður Sif Sigurgeirsdóttir Vonumst til að sem flestir taki þátt í deginum með okkur en eins og við vitum öll þá er unga fólkið framtíð félagsins og vert er að nota hvert tækifæri til að auka áhuga þeirra á hundasportinu! Síðasti skráningardagur föstudagurinn 6. apríl!! Skráningargjald skal lagt inn á reikning nr. 0140-26-799 kt. 290399-2549 fyrir þann dag svo skráning sé gild. Vinsamlegast takið fram nafn þátttakanda í skýringu og sendið staðfestingu á greiðslu á netfangið [email protected] Vaka Víðisdóttir, stigahæsti ungi sýnandi ársins 2017, var fulltrúi okkar á Crufts sem var haldin helgina 8.-11. mars síðastliðinn. Crufts er stærsta hundsýning í heimi og er haldin í Birmingham ár hvert.
Í ár voru 42 keppendur skráðir frá jafn mörgum löndum í alþjóðlega keppni ungra sýnenda sem fór fram laugardagsmorguninn 10. mars. Dómari keppninnar var Yiannis Vlachos frá Grikklandi. Vaka sýndi australian shepherd-rakkann Colby en í skiptum fékk hún dobermann-tíkina Elsu. Vaka stóð sig frábærlega og var HRFÍ, landi og þjóð til sóma. Ársfundur Ungmennadeildar var haldinn í kvöld og í kjölfarið flutti Þórhildur Bjartmarz erindi um rallý-hlýðni og umhverfisþjálfun hvolpa. Við þökkum Þórhildi kærlega fyrir!
Ný stjórn var kjörin á fundinum en þrjú stjórnarsæti voru laus. Hafdís Jóna Þórarinsdóttir gaf áfram kost á sér í stjórn til tveggja ára en þær Erna Sigríður Ómarsdóttirog Hilda Björk Friðriksdóttir gáfu ekki kost á sér áfram. Við þökkum þeim Ernu og Hildu kærlega fyrir frábært og árangursríkt samstarf. Þær Vaka Víðis og Lovísa Helenudóttir gáfu kost á sér í stjórn deildarinnar. Lovísa kemur því inn í stjórn til tveggja ára og Vaka til eins árs. Stjórn deildarinnar starfsárið 2018-2019 skipa: Hafdís Jóna Þórarinsdóttir - formaður Auður Sif Sigurgeirsdóttir - meðstjórnandi Ágústa Pétursdóttir - ritari Lovísa Helenudóttir - gjaldkeri Vaka Víðisdóttir - gjaldkeri Norðurljósasýning HRFÍ var haldin 2.-4. mars síðastliðinn. Keppni ungra sýnenda fór fram á föstudagskvöldinu. Dómari að þessu sinni var Rebecca Govik frá Svíþjóð og voru 19 ungmenni skráð til leiks. Yngri flokkur: 1. sæti - Freyja Guðmundsdóttir með íslenskan fjárhund 2. sæti - Hrönn Valgeirsdóttir með siberian husky 3. sæti - Dagný Katla Kristinsdóttir með tíbet spaníel 4. sæti - Júlía Hlín Ásmundsdóttir með pug Eldri flokkur: 1. sæti - Vaka Víðisdóttir með siberian husky 2. sæti - Lovísa Helenudóttir með whippet 3. sæti - Bergdís Lilja Þorsteinsdóttir með strýhærðan vorsteh 4. sæti - Fanney Rún Ólafsdóttir með labrador Hægt er að sjá allar myndir frá keppninni með því að smella hér Við óskum öllum keppendum innilegra hamingjuóska! |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|