Nordic Winner 2023
Í fyrsta sinn nú á laugardaginn var Norðurlandamót ungra sýnenda haldið hér á Íslandi. Fjórir keppendur komu frá hverju Norðurlandi og mynduðu landslið hvers lands.
Í íslenska liðinu voru fjórir stigahæstu sýnendur ársins 2023 í eldri flokki, þær Eyrún Eva Guðjónsdóttir, Freyja Guðmundsdóttir, Hrönn Valgeirsdóttir og Jóhanna Sól Ingadóttir. Þjálfarar liðsins voru Rannveig Gauja Guðbjartsdóttir og Brynja Kristín Magnúsdóttir.
Eyrún Eva Guðjónsdóttir keppti með Enskan Cocker Spaniel
Freyja Guðmundsdóttir keppti með Irish Soft Coated Wheaten Terrier
Hrönn Valgeirsdóttir keppti með German Short-haired Pointer
Jóhanna Sól Ingadóttir keppti með Siberian Husky
Íslenska liðið stóð sig heldur betur vel í keppninni, en Eyrún, Freyja og Hrönn komust í efstu 5 keppenda úrslit í einstaklingskeppninni. Endaði Freyja sem sigurvegari og Hrönn í 2. sæti!
Einnig var keppt í liðakepppni og lönduðu stelpurnar 2. sætinu þar!
Vægast sagt frábært árangur hjá þessum fjórum flottu stelpum sem eiga framtíðina fyrir sér.
Við óskum stelpunum innilega til hamingju með þennan frábæra árangur, en þær voru félaginu til mikils sóma!
Þökkum Royal Canin fyrir frábæran stuðning við okkar landslið!

Nordic Winner 2022
Keppnin var haldin í Helsinki í Finnlandi 3. desember
Landslið Íslands skipuðu þau Eyrún Evu Guðjónsdóttur, Freyju Guðmundsdóttur, Hrönn Valgeirsdóttur og Maríus Þorra Ólason.
Þjálfari og fararstjóri var Rannveig Gauja Guðbjartsdóttir.
Eyrún keppti með Irish Soft Coated Wheaten Terrier, Freyja keppti með Tíbetan Spaniel, Hrönn keppti með Enskan Setter og Maríus keppti með Flat-coated Retriever.
Keppt var bæði í einstaklings- og liðakeppni og stóðu þau sig frábærlega!
Hrönn, Freyja og Eyrún komust í topp 10 og gerði Eyrún sér lítið fyrir og lenti í 3 sæti í einstaklingskeppni!
Auk þess voru þau í 3. sæti í liðakeppninni!
Við óskum íslenska liðinu innilega til hamingju og voru þau HRFÍ til mikils sóma!

Nordic Winner 2021
Keppnin var haldin í Herning í Danmörk 14. nóvember
Landslið Íslands skipuðu þær Bergdísi Lilju Þorsteinsdóttur, Hrönn Valgeirsdóttur, Freyju Guðmundsdóttur og Þórdís Lilju Ingþórsdóttur
Þjálfari og fararstjóri var Rannveig Gauja Guðbjartsdóttir.
Bergdís keppti með Enskan Springer Spaniel, Hrönn keppti með Enskan Springer Spaniel, Freyja keppti með Beagle og Þrósdís keppti með Pug.
Keppt var bæði í einstaklings- og liðakeppni og stóðu stúlkurnar sig frábærlega.
Íslenska liðið var HRFÍ til mikils sóma!

Nordic Winner 2020
Vegna Covid heimsfaraldurs var ekki boðið upp á Nordic Winner championship.
Landslið Íslands á Nordic Winner ef sú keppni hefði verið verið haldin:
Bergdís Lilja Þorsteinsdóttir
Stefanía Stella Baldursdóttir
Hrönn Valgeirsdóttir
Freyja Guðmundsdóttir

Nordic Winner 2019
Keppnin var haldin í Stokkhólmi 14.-15. desember 2019
Landslið Íslands skipuðu þær Bergdísi Lilju Þorsteinsdóttur, Elenu Mist Theodórsdóttur, Snærúnu Ynju Hallgrímsdóttur Smith og Stefaníu Stellu Baldursdóttur.
Þjálfari og fararstjóri var Rannveig Gauja Guðbjartsdóttir.
Bergdís keppti með Samoyed, Elena keppti með Golden Retriever, Snærún keppti með Siberian Husky og Stefanía keppti með Lhasa Apso.
Keppt var bæði í einstaklings- og liðakeppni og stóðu stúlkurnar sig frábærlega og urðu í 3. sæti í liðakeppninni!
Við óskum íslenska liðinu innilega til hamingju og voru þær HRFÍ til mikils sóma!

Nordic Winner 2018
Þann 16. nóvember fór fram Nordic Winner keppni ungra sýnenda í Lillestrøm, Noregi. Dómai var Janelle W. Robbins.
Landslið Íslands skipuðu þær Bergdís Lilja Þorsteinsdóttir, Lovísa Helenudóttir, Stefanía Stella Baldursdóttir og Vaka Víðisdóttir. Þjálfari og fararstjóri var Rannveig Gauja Guðbjartsdóttir.
Á fimmtudagskvöldinu var haldinn kvöldverður fyrir alla keppendur þar sem krakkarnir fengu tækifæri á að kynnast öðrum í sama áhugamáli. Þá fengu stelpurnar einnig að vita hvaða tegundir þær kæmu til með að sýna í keppninni.
Bergdís fékk strýhærðan vorsteh, Lovísa var með whippet, Stella með strýhærðan dachshund og Vaka með enskan pointer. Stelpurnar stóðu sig allar með prýði sem og þjálfari þeirra! Vaka komst áfram í tíu keppenda úrslit.
Við óskum þeim öllum innilega til hamingju með frábæran árangur á erlendri grundu, þær voru Íslandi og HRFÍ til mikils sóma.

Nordic Winner 2017
Nordic Winner 2017 fór fram í Helsinki, Finnlandi helgina 8.-10. desember. Þær, sem mynduðu liðið í ár, voru Berglind Gunnarsdóttir, Elena Mist Theodórsdóttir, Ingunn Birta Ómarsdóttir og Vaka Víðisdóttir. Þjálfari og liðstjóri var Auður Sif Sigurgeirsdóttir.
Stelpurnar kepptu laugardagsmorguninn 9. nóvember en þær fengu að hitta hundana sem þær sýndu klukkutíma fyrir keppni. Berglind sýndi samoyed, Elena silky terrier, Ingunn tíbet spaníel og Vaka ástralskan fjárhund. Dómari keppninnar var Jason Lynn frá Bretlandi.
Keppt var bæði í einstaklings- og liðakeppni og stóðu stelpurnar sig frábærlega! Þær báru sigur úr býtum í liðakeppninni en í einstaklingskeppninni komust Berglind, Elena og Ingunn í top 10 keppenda úrslit og þar gerði Berglind sér lítið fyrir og sigraði einstaklingskeppnina!
Ísland kom því með tvö gullverðlaun heim í fyrsta skipti. Við óskum íslenska liðinu og þjálfaranum Auði Sif innilega til hamingju, þær voru HRFÍ til mikils sóma!

Nordic Winner 2016
Nordic Winner 2016 fór fram í Herning, Danmörku helgina 5.-6. nóvember. Þær, sem mynduðu lið HRFÍ í ár, voru Hafdís Jóna Þórarinsdóttir, Berglind Gunnarsdóttir, Elena Mist Theodórsdóttir og Vaka Víðisdóttir. Þjálfari og liðsstjóri var Auður Sif Sigurgeirsdóttir.
Stúlkurnar kepptu laugardagsmorguninn 5. nóvember kl. 9:00 og fóru inn í úrslit kl.13:00. Keppendur fengu að hitta hundana sem þær sýndu klukkutíma fyrir keppni. Hafdís sýndi enskan springer spaniel, Berglind siberian husky, Elena irish soft coated wheaten terrier og Vaka siberian husky. Dómari keppninnar var Shaun Watson frá Kýpur.
Keppt var bæði í einstaklings- og liðakeppni og stóðu stúlkurnar sig frábærlega og urðu í 2. sæti í liðakeppninni!
Við óskum íslenska liðinu innilega til hamingju og voru þær HRFÍ til mikils sóma!
Stúlkurnar kepptu laugardagsmorguninn 5. nóvember kl. 9:00 og fóru inn í úrslit kl.13:00. Keppendur fengu að hitta hundana sem þær sýndu klukkutíma fyrir keppni. Hafdís sýndi enskan springer spaniel, Berglind siberian husky, Elena irish soft coated wheaten terrier og Vaka siberian husky. Dómari keppninnar var Shaun Watson frá Kýpur.
Keppt var bæði í einstaklings- og liðakeppni og stóðu stúlkurnar sig frábærlega og urðu í 2. sæti í liðakeppninni!
Við óskum íslenska liðinu innilega til hamingju og voru þær HRFÍ til mikils sóma!
Nordic Winner 2015
Nordic Winner 2015 fór fram í Stokkhólmi, Svíþjóð helgina 12.-13. desember sl. Þær, sem mynduðu lið HRFÍ í ár, voru Hafdís Jóna Þórarinsdóttir, Margrét Hauksdóttir, Berglind Gunnarsdóttir og Ylfa Dögg Ástþórsdóttir. Þjálfari og liðsstjóri var Auður Sif Sigurgeirsdóttir.
Stúlkurnar völdu fyrir keppnina þrjár tegundir sem þær gátu hugsað sér að sýna en sænska hundaræktarfélagið útvegaði öllum keppendum fyrsta val þeirra. Keppendur fengu að hitta hundana klukkutíma fyrir keppni. Hafdís sýndi flat-coated retriever, Margrét amerískan cocker spaniel, Berglind siberian husky og Ylfa australian shepherd. Dómari keppninnar var Ante Lučin frá Króatíu.
Keppt var bæði í einstaklings- og liðakeppni og stóðu stúlkurnar sig frábærlega og urðu í 2. sæti í liðakeppninni! Hafdís Jóna gerði sér svo lítið fyrir og var valin í 10 keppenda úrslit í einstaklingskeppninni.
Við óskum íslenska liðinu innilega til hamingju og voru þær HRFÍ til mikils sóma!
Stúlkurnar völdu fyrir keppnina þrjár tegundir sem þær gátu hugsað sér að sýna en sænska hundaræktarfélagið útvegaði öllum keppendum fyrsta val þeirra. Keppendur fengu að hitta hundana klukkutíma fyrir keppni. Hafdís sýndi flat-coated retriever, Margrét amerískan cocker spaniel, Berglind siberian husky og Ylfa australian shepherd. Dómari keppninnar var Ante Lučin frá Króatíu.
Keppt var bæði í einstaklings- og liðakeppni og stóðu stúlkurnar sig frábærlega og urðu í 2. sæti í liðakeppninni! Hafdís Jóna gerði sér svo lítið fyrir og var valin í 10 keppenda úrslit í einstaklingskeppninni.
Við óskum íslenska liðinu innilega til hamingju og voru þær HRFÍ til mikils sóma!
Nordic Winner 2014!
Glæsilegur árangur íslenska liðsins á Nordic Winner í Noregi!
Pre-judging fór fram kl. 11 (norskum tíma) að morgni þann 15. nóvember en þær fengu að hitta hundana sína klukkutíma fyrir keppni til að kynnast þeim - þær kepptu fyrst sem lið og svo sem einstaklingar
Hafdís sýndi samoyed, Hilda sýndi jack russell terrier, Margrét sýndi whippet og Ylfa sýndi papillon!
Öll liðin fóru inn saman í stóra hringinn seinna um daginn með þjálfurum sínum en þar hreppti Ísland 3. sætið!
Í stóra hringinn mættu svo efstu 10, sem dómarinn valdi í pre-judging fyrr um daginn, en í þeim hópi voru báðar Hafdís og Hilda. Hilda gerði sér svo lítið fyrir og landaði 3. sætinu í einstaklingskeppninni!
Glæsilega gert hjá stelpunum, enda félaginu til mikils sóma, og óskum við þeim innilega til hamingju með árangurinn!

Góður árangur á Nordic Winner 2013
Þá er liðið okkar komið aftur heim og stóð sig frábærlega í Finnlandi á laugardaginn! Fyrst fóru þær inn sem lið og söfnuðu stigum sem lið fyrir liðakeppnina og svo fóru þær inn í blönduðum hópum og söfnuðu sér inn stigum sem einstaklingar. Í fyrsta hópnum var Theodóra sem sýndi Flatcoated retriever, í öðrum hópnum var Jóhanna Líf með enskan springer spaniel, í þriðja hópnum var Erna Sigríður með Tibetan spaniel og í fjórða og seinasta hópnum var Hilda Björk með Irish soft coated wheaten terrier. Eftir forkeppnina var farið inn í stóra hringinn. Þar fóru öll liðin saman inn og voru liðin valin í verðlaunasæti. Því miður varð liðið okkar ekki í sæti að þessu sinni. Síðan voru úrslit í einstaklingskeppninni en þar komust Erna og Theodóra í 10 sýnenda úrslit og endaði Erna daginn með að hreppa 3. sætið! Óskum við stelpunum til hamingju með árangurinn og viljum þakka Auði Sif Sigurgeirsdóttur fyrir að vera þeim frábær stuðningur og þjálfari!
Velgengni á Nordic Winner í Danmörku 2012
Landsliðið okkar stóð sig frábærlega á Nordic Winner í Danmörku 4. nóvember sl. þar sem þær stóðu sig frábærlega og voru okkur til sóma. Þær voru einungis 4 stigum á eftir 1. sætinu! Þær vilja þakka Sensa fyrir styrk i liðspeysur og Nóa Siríus fyrir að gefa þeim nammi fyrir hin liðin, þær vilja einnig þakka Soffíu í Dýrheimum fyrir peningastyrk og auðvitað þjálfaranum sínum Auði Sif Sigurgeirsdóttur sem var þeirra stoð og stytta. Við erum stoltar af þeim enda stóðu þær sig frábærlega þessar stelpur!
Theodóra Róbertsdóttir sýndi Flat coated retriever
Elísabet Guðjónsdóttir sýndi English springer spaniel
Erna Sigríður Ómarsdóttir sýndi Petit basset griffon vendéen
Brynja Kristín Magnúsdóttir sýndi Papillon

Velgengni á Nordic Winner í Svíþjóð 2011
Liðið okkar hélt út til Stokkhólmar í byrjun desember. Farið var út að borða með hinum liðunum á laugardagskvöldinu og skemmtu allir sér konunglega.
Theodóra var í fyrsta hollinu og gekk mjög vel með Flat-coated retriever hundinn sem hún fékk.
Erna var í öðru holli og gekk einnig mjög vel með Sheltie tíkina sem hún fékk.
Þórkatla var þriðja og fékk því miður ekki hundinn sem hún átti að fá heldur fékk hún Shiba-Inu tík en gekk þrátt fyrir mjög vel.
Elín var svo í síðasta hollinu og fékk Aussie hund og gekk mjög vel með hann.
Seinna um daginn fóru öll liðin inn sem lið og lenti liðið okkar í öðru sæti! Sem er frábær árangur!
Í einstaklingskeppninni gekk einnig ótrúlega vel og lentu Elín, Theodóra og Þórkatla í top 10! Elín náði svo þeim glæsilega árangri og varð í öðru sæti af 20 keppendum frá norðurlöndunum! Sem er bara frábært!
Það var góð liðsheild og voru stelpurnar í rauðum peysum merktum sér og liðinu og vöktu eftirtekt.
Auður Sif þjálfaði liðið og stóð sig með prýði! Var okkar stoð og stytta!