Stjórn Ungmennadeildar hefur tekið þá ákvörðun að eftir septembersýningu HRFÍ mun ráðast hvaða fjórir stigahæstu í eldri flokki ungra sýnenda fara fyrir hönd Íslands sem landsliðið og keppa á Nordic Winner í Finnlandi í byrjun desember. Ástæðan er sú að nóvembersýning HRFÍ er svo seint á árinu að of stuttur tími er á milli hennar og Nordic Winner sýningarinnar í Finnlandi. Nóvembersýningin mun samt gilda inn til stiga fyrir stigahæstu ungu sýnendurna.
Tvöföld útisýning HRFÍ var haldin helgina 23.-25. júní sl. Keppni ungra sýnenda fór fram föstudagskvöldið 23. júní. Dómari var Katrine Jeppesen og voru 24 ungmenni skráð í keppnina.
Yngri flokkur: 1. sæti - Maríus Þorri Ólason með cavalier king charles spaniel - 40 stig 2. sæti - Hrönn Valgeirsdóttir með amerískan cocker spaniel - 30 stig 3. sæti - Freyja Guðmundsdóttir með íslenskan fjárhund - 20 stig 4. sæti - Herbert Snær Númason með Pomeranian - 10 stig Eldri flokkur: 1. sæti - Elena Mist Theodórsdóttir með silky terrier - 40 stig 2. sæti - Ingunn Birta Ómarsdóttir með tíbetan spaniel - 30 stig 3. sæti - Lovísa Helenudóttir með whippet - 20 stig 4. sæti - Stefanía Stella Baldursdóttir með írskan setter - 10 stig Hægt er að smella á myndirnar til að sjá þær stærri en fleiri myndir er hægt að finna HÉR. |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|