Í dag fór fram fyrsta æfingasýning Unglingadeildarinnar árið 2014 og heppnaðist mjög vel. 37 ungmenni voru skráð til leiks og var skipt í 3 flokka að þessu sinni. Unglingadeild byrjaði með nýjung sem er barna flokkur sem er fyrir krakka á aldrinum 5-8 ára. Boðið var svo upp á hefbundnu flokkana, yngri og eldri flokk en yngri flokkur var fyrir 9-12 ára í þetta sinn. Dómarar voru tveir í þetta skiptið en Sóley Ragna Ragnarsdóttir dæmdi barna flokk en Sóley Halla Möller dæmdi yngri og eldri flokk. Þessi sýning gildir EKKI til stiga í lok árs. Yngri flokkur: 1. sæti - Stefanía Stella Baldursdóttir með pug 2. sæti - Elena Mist Theodórsdóttir með labrador retriever 3. sæti - Agatha Elín Steinþórsdóttir með írskan setter 4. sæti - Vaka Víðisdóttir með siberian husky Eldri flokkur: 1. sæti - Hilda Björk Friðriksdóttir með dverg schnauzer s/s 2. sæti - Hafdís Jóna Þórarinsdóttir með shetland sheepdog 3. sæti - Ingunn Birta Ómarsdóttir með siberian husky 4. sæti - Sigrún Sandra Valdimarsdóttir með american cocker spaniel Myndir eru að finna á facebook-síðu deildarinnar HÉR Stjórn Unglingadeildar þakkar eftir töldum aðilum stuðninginn fyrir sýninguna: Bed Head, Dýrabær, Dýralíf.is, Dýrheimar, Gæludýr.is, Lífland, og Royal Canin |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|