Sigurvegari eldri flokks. Helga Þöll Guðjónsdóttir
Nú í nóvember var keppni ungra sýnenda haldin á laugardegi 17. nóvember sl. John Walsh dæmdi en það voru 11 sýnendur í yngri flokki og 21 í eldri flokk. Úrslitin voru eftirfarandi: Yngri flokkur: 1. sæti – Ingunn Birta Ómarsdóttir - 40 stig 2. sæti – Berglind Gunnarsdóttir - 30 stig 3. sæti – Hrafnhildur Hólm Guðnadóttir - 20 stig 4. sæti – Tanja Guðlaugsdóttir - 10 stig Eldri flokkur: 1. sæti – Helga Þöll Guðjónsdóttir - 40 stig 2. sæti – Brynja Kristín Magnúsdóttir - 30 stig 3. sæti – Elísabet Ásta Guðjónsdóttir - 20 stig 4. sæti – Ylfa Dögg Ástþórsdóttir -10 stig Landsliðið okkar stóð sig frábærlega á Nordic Winner í Danmörku 4. nóvember sl. þar sem þær stóðu sig frábærlega og voru okkur til sóma. Þær voru einungis 4 stigum á eftir 1. sætinu! Þær vilja þakka Sensa fyrir styrk i liðspeysur og Nóa Siríus fyrir að gefa þeim nammi fyrir hin liðin, þær vilja einnig þakka Soffíu í Dýrheimum fyrir peningastyrk og auðvitað þjálfaranum sínum Auði Sif Sigurgeirsdóttur sem var þeirra stoð og stytta. Við erum stoltar af þeim enda stóðu þær sig frábærlega þessar stelpur! Theodóra Róbertsdóttir sýndi Flat coated retriever Elísabet Guðjónsdóttir sýndi English springer spaniel Erna Sigríður Ómarsdóttir sýndi Petit basset griffon vendéen Brynja Kristín Magnúsdóttir sýndi Papillon |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|