Í kvöld var haldinn aðalfundur Unglingadeildar á skrifstofu HRFÍ að Síðumúla 15.
Úr stjórn gengu Erna Sigríður Ómarsdóttir og Birta Dröfn Valsdóttir eftir tveggja ára störf í stjórn og Elín Rós Hauksdóttir eftir störf í eitt ár. Hilda Björk situr enn inni í stjórn en Brynja Kristín Magnúsdóttir sagði af sér og var því kosið inn í tvö sæti til tveggja ára og tvö til eins árs að þessu sinni. Við þökkum þessum stelpum fyrir vel unnin störf starfsárið 2013-2014. Jóhanna Líf Halldórsdóttir og Hafdís Jóna Þórarinsdóttir voru kosnar inn til tveggja ára, Theodóra Róberstdóttir var kosin til eins árs ásamt Ernu sem bauð sig aftur fram. Stjórnina árið 2014-2015 skipa því: Theodóra Róbertsdóttir, formaður, Erna Sigríður Ómarsdóttir, Hafdís Jóna Þórarinsdóttir, Hilda Björk Friðriksdóttir og Jóhanna Líf Halldórsdóttir Í janúar munum við fá Theodóru, stigahæsta unga sýnandann 2013 til þess að halda smá námskeið fyrir ungu sýnendurna! Verður námskeiðinu skipt í bæði bóklegan og verklegan hluta. Bóklegi hlutinn verður haldinn á skrifstofu HRFÍ á virkum degi fyrir verklega hlutann. - Boðið verður upp á léttar veitingar og drykki Verð: 1500kr, allur ágóði af námskeiðinu fer beint til Unglingadeildar Nánari upplýsingar á mynd eða í skilaboðum. Skráning á [email protected] - nafn -flokkur -tegund -sími Með von um góðar undirtektir -stjórn Unglingadeildar |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|