Haustfögnuður Ungmennadeildar HRFÍ fór fram laugardaginn 29. september og lukkaðist virkilega vel. Það var góð þátttaka og frábær andi í húsinu. Deildin vill þakka þeim sem skráðu sig, nutu dagsins með okkur og á sama tíma styrktu deildina okkar!
Einnig viljum við skila innilegu þakklæti til dómaranna en það voru þau Auður Sif Sigurgeirsdóttir sem dæmdi barnaflokkana, Anja Björg Kristinsdóttir, Brynja Kristín Magnúsdóttir og Edward Birkir Dóruson sem dæmdu unga sýnendur og fullorðinsflokkana. Silja Unnarsdóttir var með skemmtilega kynningu á rallý-hlýðni og Ævar Valgeirsson með mjög áhugaverða kynningu á Retriever-veiðiþjálfun. Við þökkum þeim fyrir að kynna sín störf og vonandi juku þau áhuga ungu kynslóðarinnar á vinnu með hundunum sínum. Dagurinn hefði ekki lukkast svona vel ef það væri ekki fyrir styrktaraðila dagsins en við viljum þakka Dýrheimum fyrir vinninga og þátttökuverðlaun, Dekurdýrum og Non-stop fyrir vinninga. Við vorum verulega heppin að fá Stöð 2 í heimsókn. Hægt er að sjá fréttina hér: http://www.visir.is/k/8b619ec1-cc2d-4353-a171-9fcc71720756-1538248654673 Myndir frá deginum má sjá HÉR. ÚRSLIT: Ungir sýnendur, 10-17 ára:
Vonandi nutu allir dagsins, ungir sem aldnir! Comments are closed.
|
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|