Við kynnum með stolti dómara ungra sýnenda á Winter Wonderland sýningu HRFÍ sem haldin verður helgina 23.-25. nóvember í reiðhöll Fáks í Víðidal. Louise Dufwa hefur búið með hundum frá því hún fæddist og hafa þeir ávallt verið hluti af fjölskyldulífi hennar. Afi hennar ræktaði dachshund og var sýningadómari, faðir hennar, einnig fyrrum sýningadómari, var vel þekktur fyrir ræktun sína á enskum cocker spaniel og eru hundar hans enn á merki sænska Cocker Spaniel klúbbsins. Í dag heldur Louise áfram með ræktun fjölskyldunnar ásamt móður sinni, Ewu. Þær rækta Cairn terrier undir ræktunarnafninu Tribuns og hafa ræktað 98 meistara og 29 alþjóðlega meistara ásamt fjölda hunda sem hafa hlotið European- og World Winner titla. Louise var verulega virk í ungum sýnendum á hennar yngri árum og átti hún farsælan feril. Hún vann meðal annars sænsku lokakeppnina og var fulltrúi Svíþjóðar á Crufts og sigraði bæði einstaklings- og liðakeppnina á Nordic Winner. Hún dvaldi í Bandaríkjunum þar sem hún bjó og vann hjá þekkta terrier sýnandanum Susan Kipp. Louise hefur dæmt hunda úr öllum tegundahópum á opnum klúbbsýningum. Hún er fyrrum ritari sænska ungmennaráðsins og hefur hún tekið þátt í að skipuleggja sænsku lokakeppnina í ungum sýnendum sem og haldið námskeið fyrir dómara ungra sýnenda. Árið 2013 var hún heiðruð með Marikarlos styrk fyrir framlag hennar til ungu kynslóðarinnar í sænska hundaræktarfélaginu. Í dag er hún meðlimur vinnuhóps hreinræktaðra hunda hjá sænska hundaræktarfélaginu og dómari ungra sýnenda. Hún sýnir hunda um alla Evrópu en þó aðallega á Norðurlöndunum. Louise mun svo halda námskeið fyrir unga sýnendur mánudaginn 26. nóvember. Nánari upplýsingar koma síðar Við minnum ykkur á að síðasti skráningardagur á lægri gjaldskrá er 12. október. Við vonum að sem flestir ungir sýnendur skrái sig og taki þátt en þetta er síðasta sýning ársins. Skráning fer fram á skrifstofu HRFÍ eða í síma 588-5255. Skrifstofan er opin virka daga frá klukkan 10-15. Skráningarfresti á seinni gjaldskrá lýkur 26. október. Comments are closed.
|
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|