Sæl öll, Dagur Ungmennadeildar verður haldinn hátíðlegur þann 15. apríl í reiðhöll Andvara að Hattavöllum. Dagkrá hefst stundvíslega klukkan 12:15. Skráning fór vonum framar en alls eru 86 einstaklingar skráðir til þátttöku og erum við ykkur innilega þakklát fyrir að vilja njóta dagsins með okkur og styrkja jafnframt Ungmennadeild HRFÍ! Við minnum ykkur á að dagskráin sem fylgir er aðeins viðmið og gætu tímarnir breyst. Verið því mætt stundvíslega svo þétt dagskráin gangi vel. Fjöldi í flokkum: Barnaflokkur 3-5 ára - 15 Barnaflokkur 6-8 ára - 18 Ungir sýnendur, yngri - 13 Ungir sýnendur, eldri - 11 Fullorðinsflokkur 18-34 ára - 13 Fullorðinsflokkur 35+ ára - 15 Minnum einnig á að einhverjir eiga eftir að greiða og geta þeir gert það með því að leggja inn á: Reikningsnúmer: 0140-26-799 Kennitala: 290399-2549 Þátttökugjald í barnaflokka: 1500kr. Þátttökugjald í unga sýnendur og fullorðinsflokka: 2000kr. Það verður kaffisala á staðnum en við erum því miður EKKI með posa. Einnig er gott að hafa í huga að þamba ekki of mikið yfir daginn þar sem engin salerni eru í reiðhöll Andvara. Hlökkum til að sjá ykkur á sunnudaginn! Ef einhverjar spurningar vakna, ekki hika við að hafa samband :D Dagskrá:Comments are closed.
|
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|