Dagur Ungmennadeildar fór fram sunnudaginn 15. apríl og gekk vonum framar! Frábær þátttaka var í öllum flokkum en í heildina voru næstum því 90 þátttakendur! Andinn var svo góður í húsinu og mikil skemmtun. Deildin vill þakka öllum þeim sem komu og nutu dagsins með okkur! Dómarar dagsins voru Ingunn Birta Ómarsdóttir sem dæmdi barnaflokkana, Hildur Sigrún Guðbrandsdóttir dæmdi unga sýnendur og Auður Sif Sigurgeisdóttir dæmdi fullorðisflokkana og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir!
Einnig vill stjórnin skila innilegu þakklæti til Dýrheima, Melabúðarinnar og Non-stop fyrir að gefa frábæra vinninga. Við vonum að allir hafi farið ánægðir heim, ungir sem aldnir! Úrslit dagsins: Allir í barnaflokki fóru heim sem sigurvegarar :D Yngri flokkur ungra sýnenda: 1. sæti - Freyja Guðmundsdóttir með íslenskan fjárhund 2. sæti - Júlía Hrönn Ásmundsdóttir með pug 3. sæti - Tanja Björk Adamsdóttir með tíbet spaníel 4. sæti - Birta Sól Hafsteinsdóttir með dverg schnauzer Eldri flokkur ungra sýnenda: 1. sæti - Vaka Víðisdóttir með siberian husky 2. sæti - Lovísa Helenudóttir með chihuahua 3. sæti - Stefanía Stella Baldursdóttir með pug 4. sæti - Bergdís Lilja Þorsteinsdóttir með flat-coated retriever Fullorðinsflokkur 18-34 ára 1. sæti - Birta Skúladóttir með dandie dinmont terrier 2. sæti - Edward Birkir Dóruson með chihuahua 3. sæti - Hafdís Jóna Þórarinsdóttir með ástralskan fjárhund 4. sæti - Anna Dís Arnarsdóttir með afghan hound Fullorðinsflokkur 35+ 1. sæti - Berglind Kristjánsdóttir með chihuahua 2. sæti - Edda Janette Sigurðsson með enskan cocker spaniel 3. sæti - Óli Þór Árnason með labrador 4. sæti - Svava Björk Ásgeirsdóttir með ástralskan fjárhund Við óskum öllum innilega til hamingju! Hægt er að sjá fleiri myndir HÉR Comments are closed.
|
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|