Nú er sýningarárið 2014 er á enda og liggja fyrir lokastig um stigahæstu ungu sýnendur og því er hægt að birta lista yfir stigahæstu sýnendur ársins. Stigahæsti sýnandi í yngri flokki þetta árið er Agatha Elín Steinþórsdóttir, en hún endaði með 90 stig! Við óskum Agöthu innilega til hamingju með frábæran árangur. Stigahæstu sýnendurnir í eldri flokki eru eftirfarandi: 1. sæti - Helga Þöll Guðjóndóttir með 130 stig - Fulltrúi Íslands á Crufts 2015 2. sæti - Hafdís Jóna Þórarinsdóttir með 90 stig - Fulltrúi Íslands á Heimssýningunni 2015 3. sæti - Ylfa Dögg Ástþórsdóttir með 60 stig - Fulltrúi Íslands á Evrópusýningunni 2015 4. sæti - Margrét Hauksdóttir með 50 stig Nordic Winner lið félagsins kom í ljós eftir ágústsýningu HRFÍ þar sem Nordic Winner sýningin var haldin í Noregi helgina eftir nóvembersýningu HRFÍ og þótti það of lítill fyrirvari. Nordic Winner liðið saman stendur af: Hafdísi Jónu Þórarinsdóttur, Hildu Björk Friðriksdóttur, Margréti Hauksdóttur og Ylfu Dögg Ástþórsdóttur. Óskum þeim innilega til hamingju og óskum þeim góðs gengis á keppnunum úti!
0 Comments
Leave a Reply. |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|