Sýningarþjálfun á vegum Unglingadeildarinnar hefst sunnudaginn 5.febrúar og verður haldin Í PLÁSSINU HÆGRA MEGIN VIÐ GÆLUDÝR.IS!
Sunnudagurinn 5. febrúar Kl.13-14 : Ungir sýnendur Kl. 14-15: Stórir hundar Kl. 15-16: Litlir hundar Sunnudagurinn 12.febrúar Kl. 13-14: Ungir sýnendur Kl. 14-15: Grúbbur 1,2 og 7 Kl. 15-16: Grúbbur 3,5 og 9 Kl. 16-17: Grúbbur 8, 4/6 og 10 Sunnudagurinn 19.febrúar Kl. 13-14: Ungir sýnendur Kl. 14-15: Grúbbur 1,2 og 7 Kl. 15-16: Grúbbur 3,5 og 9 Kl. 16-17: Grúbbur 8, 4/6 og 10 Veistu ekki hvaða grúbbu hundurinn þinn er í ? Kíktu hér: http://www.hrfi.is/Default.asp?page=294 Mikilvægt er að fólk taki með sér kúkapoka, sýningartaum og nammi/dót fyrir hundinn. Að venju kostar hvert skipti 500 kr.- og rennur sá peningur óskiptur til þess að styrkja keppendur Unglingadeildarinnar erlendis. En Unglingadeildin með dyggri aðtoð HRFÍ, Pedigree og Royal Canin senda fulltrúa á helstu sýningar erlendis. Sá ungi sýnandi sem er stigahæstur eftir árið í eldri flokk keppir á Crufts. Annar stigahæsti ungi sýnandinn í eldri flokk keppir á Heimssýningunni og þriðji stigahæsti ungi sýnandinn í eldri flokk keppir á Evrópusýningunni. Síðan fer lið skipað fjórum stigahæstu ungu sýnendunum úr eldri flokk á Norðurlandakeppni ungra sýnenda. Við viljum einnig koma því á framfæri hversu vel okkar keppendum gekk á Norðurlandakeppninni í desember 2011 en okkar lið varð í öðru sæti, þrjár af fjórum í liðinu komust svo í TOP 10 í einstaklingskeppninni og Elín Rós Hauksdóttir endaði svo í 2. sæti í einstaklingskeppninni!! Þetta er frábær árangur hjá lítilli þjóð einnig vegna þess hve litla reynslu okkar keppendur hafa samanborið við hin löndin! ATH. - Mikilvægt er að mæta á réttum tíma svo æfingarnar geti byrjað á tilsettum tíma. Hlökkum til að sjá ykkur! Bestu kveðjur, Stjórn Unglingadeildar HRFÍ. Comments are closed.
|
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|