Um leið og við minnum á að á morgun, föstudaginn 18. ágúst, er síðasti skráningardagur á septembersýningu félagsins, langar okkur að kynna dómara ungra sýnenda, hinn norska Patrick Oware. Patrick á að baki glæsilegan feril sem ungur sýnandi en hann var m.a. fulltrúi Noregs í alþjóðlegri keppni ungra sýnenda á Crufts og valinn í landslið Noregs. Eftir að ungra sýnenda ferli hans lauk hefur hann sýnt hunda af fjölmörgum tegundum með frábærum árangri, m.a. Flat-coated retriever sem varð í 2. sæti í gundog-tegundahópnum á Crufts! Patrick verður með námskeið fyrir unga sýnendur mánudaginn 18. september og hvetjum við alla til að skrá sig og læra enn meira. Námskeiðin verða tvö, annað kl. 18 og hitt kl. 20. Þegar skráningu er lokið fá þátttakendur sendan póst með tímasetningu. ATH að þeir keppendur sem taka þátt í keppni ungra sýnenda á sýningunni eru í forgangi á námskeiðið. Verð er 5.000 kr. en einnig geta þátttakendur notað 15 umbunapunkta til að greiða fyrir námskeiðið! Skráning hér að neðan!
Kristjòn Karl Guđmannsson
3/9/2017 02:25:50 am
Einn 11 àra međ litla reynslu vill koma og helst kl 18 Comments are closed.
|
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|