Þá er komið að fyrstu æfingasýningunni í ár og verður hún haldin 5. apríl í Gæludýr.is á Koprutorgi. Að þessu sinni munum við bjóða upp á þrjá flokka, 5-8 ára, 9-12 ára og 13-17 ára. Sóley Ragna Ragnarsdóttir mun dæma 5-8 ára flokkinn, en þetta er eins konar æfingaflokkur þar sem allir fá að spreyta sig með hundana sína og allir fá verðlaun í lokin. Sóley Halla Möller mun svo dæma 9-12 ára flokkinn og 13-17 ára flokkinn og verður það hefbundin keppni. Ps. þessi keppni gildir EKKI til stiga í lok árs. Þátttökugjald í 5-8 ára flokkinn er 1000 kr. en í 9-12 og 13-17 ára flokkana 1500 kr. Hér fyrir neðan er útfyllanlegt skráningarblað sem sendist beint á okkur þegar það er ýtt á "Senda". Skráningarfrestur er til og með miðvikudeginum 26. mars. Bestu kveðjur, stjórn Unglingadeildar HRFÍ
Anna
18/3/2014 01:00:33 pm
Hvernig er svo greitt fyrir keppnina :) er sent e-mail eða er borgað á keppninni sjálfri
Unglingadeild Hrfí
18/3/2014 04:58:39 pm
Við munum senda ut póst með reikningaupplýsingum til að millifæra á þegar skráningar frestur er runninn út :)
Carrie Ralston
28/3/2014 06:13:39 am
Er of seint að skrá dóttur mína, Margrét Karen Olgeirsdóttir? Ég reyndi að fylla út skráningarblaðið og var að spá í hvort það er of seint. Comments are closed.
|
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|