Dagur Ungmennadeildar HRFÍ var haldinn hátíðlegur sunnudaginn 25. september í Gæludýr.is á Korputorgi.
Börnum á aldrinum 3-5 ára og 6-8 ára gafst tækifæri til að spreyta sig í sýningarhring með fjórfætta vini sína ásamt því að keppt var í yngri og eldri flokki ungra sýnenda og fullorðinsflokkum 18-34 ára og 35 ára og eldri. Skráning fór fram úr björtustu vonum en rúmlega 80 skráningar bárust frá þátttakendum á öllum aldri! Dómarar voru Hafdís Jóna Þórarinsdóttir (barnaflokkar), Karen Ösp Guðbjartsdóttir (ungir sýnendur) og Erna Sigríður Ómarsdóttir (fullorðinsflokkar) og er þeim færðar bestu þakkir fyrir. Stjórn Ungmennadeildar HRFÍ þakkar Dýrheimum ehf. fyrir frábær verðlaun og þátttökuverðlaun, Gæludýr.is fyrir gestrisnina, Melabúðinni fyrir glæsilega vinninga í fullorðinsflokkum og öllum þeim sem lögðu hönd á plóg við undirbúning, tóku þátt eða mættu til að fylgjast með þessum skemmtilega viðburði. Deildin mun svo sannarlega halda áfram að standa fyrir viðburðum sem þessum í framtíðinni og mun gera sitt allra besta til að halda utan um barna- og unglingastarfið og hvetja þau yngstu til að vera með í hundasportinu. Úrslit voru eftirfarandi: Yngri flokkur: 1. sæti - Erlen Inga Guðmundsdóttir með border terrier 2. sæti - Hrönn Valgeirsdóttir með amerískan cocker spaniel 3. sæti - Þórdís Jórunn Tryggvadóttir með labrador retriever 4. sæti - Aníta Helgadóttir með dvergschnauzer Eldri flokkur: 1. sæti - Berglind Gunnarsdóttir með siberian husky 2. sæti - Stefanía Stella Baldursdóttir með pug 3. sæti - Vaka Víðisdóttir með lhasa apso 4. sæti - Hafdís Jóna Þórarinsdóttir með shih tzu Fullorðinsflokkur 18-34 ára: 1. sæti - Anna Dís Arnarsdóttir með pug 2. sæti - Valdís Vignisdóttir með afghan hound 3. sæti - Ester Hilmarsdóttir með poodle 4. sæti - Sigrún Guðlaugardóttir með labrador retriever Fullorðinsflokkur 35 ára +: 1. sæti - Svava Björk Ásgeirsdóttir með australian shepherd 2. sæti - Sigurgeir Þráinn Jónsson með tíbet spaniel 3. sæti - Anna Vigdís Gísladóttir með border terrier 4. sæti - Linda G. Lorange með tíbet spaniel Fleiri myndir frá deginum er hægt að finna HÉR!! Comments are closed.
|
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|