Dagur Ungmennadeildar HRFÍ verður haldinn hátíðlegur sunnudaginn 10. apríl nk. í Gæludýr.is á Korputorgi. Kaffisala verður á staðnum í umsjón deildarinnar en deildin verður því miður ekki með posa.
Keppt verður í flokkum barna, ungra sýnenda og eldri sýnenda og verða flokkarnir eftirfarandi: - Börn 3-5 ára - Börn 6-8 ára - Yngri flokkur ungra sýnenda 9-12 ára - Eldri flokkur ungra sýnenda 13-17 ára - Fullorðinsflokkur 18-34 ára - Fullorðinsflokkur 35 ára og eldri Þátttökugjald í barnaflokkum: 1.000.- kr. Þátttökugjald í ungum sýnendum og fullorðinsflokkum: 1.500.- kr. Þátttökuverðlaun verða veitt í öllum flokkum! Dómari í barnaflokkum verður Erna Sigríður Ómarsdóttir Dómari í yngri og eldri flokki verður Elín Rós Hauksdóttir Dómari í fullorðinsflokkunum verður Ágústa Pétursdóttir Vonumst til að sem flestir taki þátt í deginum með okkur en eins og við öll vitum þá er unga fólkið framtíð félagsins og vert er að nota hvert tækifæri til að auka áhuga þeirra á hundasportinu! Síðasti skráningardagur föstudagurinn 1. apríl!! Skráningargjald skal lagt inn á reikning nr. 322-26-9229 kt. 090792-2029 fyrir þann dag svo skráning sé gild. Vinsamlegast takið fram nafn þátttakanda í "skýringu" og sendið staðfestingu á greiðslu á netfangið [email protected] Uppfært 9:35 02.04.16 Búið er að loka fyrir skráningu Comments are closed.
|
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|