Dagur Ungmennadeildar verður haldinn hátíðlegur sunnudaginn 15. apríl í reiðhöll Andvara. Kaffisala verður á staðnum í umsjón deildarinnar en við verðum því miður ekki með posa. Keppt verður í flokkum barna, ungra sýnenda og eldri sýnenda og verða flokkarnir eftirfarandi: - Börn 3-5 ára - Börn 6-8 ára - Yngri flokkur ungra sýnenda 9-12 ára - Eldri flokkur ungra sýnenda 13-17 ára - Fullorðinsflokkur 18-34 ára - Fullorðinsflokkur 35 ára og eldri Þátttökugjald í barnaflokkum: 1.500.- kr. Þátttökugjald í ungum sýnendum og fullorðinsflokkum: 2.000.- kr. Þátttökuverðlaun veitt í barnaflokkum og ungum sýnendum! Dómari í barnaflokkum verður Ingunn Birta Ómarsdóttir Dómari í ungum sýnendum verður Hildur Sigrún Guðbrandsdóttir Dómari í fullorðinsflokkum verður Auður Sif Sigurgeirsdóttir Vonumst til að sem flestir taki þátt í deginum með okkur en eins og við vitum öll þá er unga fólkið framtíð félagsins og vert er að nota hvert tækifæri til að auka áhuga þeirra á hundasportinu! Síðasti skráningardagur föstudagurinn 6. apríl!! Skráningargjald skal lagt inn á reikning nr. 0140-26-799 kt. 290399-2549 fyrir þann dag svo skráning sé gild. Vinsamlegast takið fram nafn þátttakanda í skýringu og sendið staðfestingu á greiðslu á netfangið [email protected]
Margrét H Ásgeirsdóttir
23/3/2018 09:16:43 am
Birta Sól - Opal Comments are closed.
|
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|