Ársfundur Ungmennadeildar HRFÍ fór fram þann 19. mars á skrifstofu HRFÍ að Síðumúla. Góð mæting var á fundinn.
Auður Sif Sigurgeirsdóttir var skipaður fundastjóri og las Ágústa Pétursdóttir upp skýrsluna. Ársskýrsla deildarinnar var samþykkt eftir upplestur af öllum viðstöddum. Að þessu sinni voru tvö sæti laus til tveggja ára og eitt sæti til eins árs. Auður Sif Sigurgeirsdóttir, Ágústa Pétursdóttir og Vaka Víðisdóttir gengu úr stjórn, en munu að sjálfsögðu verða nýrri stjórn innan handar. Inn í stjórn voru kosnar þær Anna Dís Arnarsdóttir til tveggja ára, Bergdís Lilja Þorsteinsdóttir til eins árs og Stefanía Stella Baldursdóttir til tveggja ára. Eftir þessi kjör sitja í stjórn þær: Anna Dís Arnarsdóttir - gjaldkeri Bergdís Lilja Þorsteinsdóttir - meðstjórnandi Hafdís Jóna Þórarinsdóttir - formaður Stefanía Stella Baldursdóttir - ritari Lovísa Helenudóttir - meðstjórnandi Að loknu kjöri voru ýmis málefni rædd. Þar á meðal var rætt um keppni ungra sýnenda sem nú fer fram á sama tíma og almenn dómgæsla inní hring. Kom tillaga þar sem nokkrar sýningar HRFÍ eru tvöfaldar hvort hægt væri að hafa keppni ungra sýnenda einnig tvöfaldar s.s. sitthvorn daginn. Ný stjórn tók vel í þessa hugmynd sem þarf að sjálfsögðu að skoða og útfæra í samræmi við sýningarstjórn. Finna má ársskýrslu 2018-2019 í heildsinni undir 'Skýrslur og fundargerðir'. Comments are closed.
|
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|