Sóley Halla Möller er gift, tveggja barna móðir sem starfar sem flugfreyja og hundasnyrtir. Sóley á tvær shetland sheepdog mæðgur í dag en hefur verið í hundunum í fjölda ára og átt mismunandi tegundir. Við fengum aðeins að forvitnast um starf og áhuga hennar á snyrtingu hunda. Hversu lengi hefur þú verið í hundunum? Ég hef alltaf verið í kringum hunda en eignaðist minn fyrsta hund þegar ég var 18 ára, Golden Retriever 1987. Hversu lengi hefur þú starfað sem hundasnyrtir og hvernig vaknaði áhuginn á faginu ? Ég hef starfað sem hundasnyrtir í 25 ár. Lærði fyrst í Englandi og hef svo farið á snyrti námskeið hér og þar í evrópu til að bæta við þekkingu á tegundum. það er alltaf hægt að læra. Ég á minningabók síðan ég var 12 àra og þar skrifa ég að ég ætli að verða Flugfreyja og Hundasnyrtir þegar ég verð stór og starfa ég við bæði í dag 😁 en alvöru áhugi minn vaknaði þegar ég eignaðist óvænt Standard Poodle 1994 sem mig langaði að snyrta sjàlf. Hvað skiptir mestu máli í almennri feldumhirðu hunda? Gott fóður, hreyfing og dagleg umhirða skiptir öllu máli , það fer einnig eftir tegund hversu mikla feldumhirðu hver hundur þarf, svo skiptir máli að vera með góða bursta og greiður og góð sjampó. Hvernig komum við í veg fyrir eða minnkum flækjumyndun hjá hundunum okkar? Það er ósköp einfalt, það þarf að vera vakandi varðandi feldhunda, svo no 1 dagleg umhirða og rétt áhöld og kunnàtta. Er mismunandi hvaða sjampó við notum eftir tegundum, hvernig veljum við það ? Já það eru til sjampó fyrir hverja feldgerð fyrir sig og um að gera kynna sér það vel og velja svo hvað hentar. Hvað þarf maður að gera til að verða hundasnyrtir? No 1,2,3 er þolinmæði ef fólk hefur ekki stjórn á skapi sínu þá á það ekkert erindi að vinna sem hundasnyrtir, það krefst mikillar þolimæði að snyrta hunda og fara vel að þeim svo það gangi vel. Eitthvað gott ráð í lokin fyrir unga sýnendur og alla hundaeigendur í tengslum við feldumhirðu. Vera dugleg að afla sér upplýsinga varðandi feldumhirðu hjá þeim sem hafa reynslu og svo er hægt að googla allt í dag nátturulega.
0 Comments
Snærún Ynja Hallgrímsdóttir Smith er 16 ára ungur sýnandi og hundaþjálfari. Snærún hefur verið að æfa spora- og hlýðniþjáflun með German shepherd tíkina sína Áru ásamt því að sýna hana. Snærún tók þátt í sporaprófi með Áru í sumar og eru þær báðar í hópi yngstu þátttakenda sem hafa náð prófi í Spori I. Hvenær byrjaðir þú í hundunum? Fékk fyrsta hundinn minn þegar ég var sjö og byrjuðum við að sýna hana en fór í unga sýnendur þegar ég var 11 Hvað finnst þér skemmtilegast við að eiga hunda? Þeir eru bara svo skemmtileg dýr og góður félagsskapur Hvernig hund/hunda áttu? Ég á 5 labradora einn strák og fjórar stelpur og svo einn þýskan fjárhund Hvenær kviknaði áhugi á spora/hlýðni þjálfun? Hef alltaf haft smá áhuga á hlýðni en þegar ég fékk Áru (þýska fjárhundinn) hafði sú sem ég fekk hana hjá verið mjög sterk í hlýðni og spori og hún hvatti mig í að byrja æfa það Ertu búin að taka þátt í keppni í hlýðni og/eða spori? Hef tekið þátt í bæði spori og hlýðni, sporið gekk ágætlega en hlýðnin hefði mátt ganga betur, einnig þjálfaði ég hund í hundafimi og náðum við bronsi þar Hvaða hund ertu að keppa með í spori og/eða hlýðni, hvernig myndirðu lýsa honum? Er að keppa með Áru schefferinn minn, hún er mjög klár og fljót að læra og það er skemmtilegt að vinna með henni. Hún er aðeins 18 mánaða en stendur sig mjög vel Hvað æfið þið oft? Reynum að fara spora a.m.k einusinni í viku en við erum með fasta tíma þar sem við förum einusinni í viku að þjálfa hlýðni svo æfi ég þess á milli heima og í gönguferðum. Allt sem við gerum með hundunum okkar er partur af hlýðniþjálfun. Hvort sem það er að sitja og bíða eftir matnum eða liggja hjá mér á meðan ég er að læra heima Hvað finnst þér mikilvægast í þjálfuninni fyrir spor/hlýðni? Í spori er mikilvægt að gera þetta ekki of oft í einu þar sem þetta tekur mikið á fyrir hundana en fara þá frekar oftar í vikunni, æfa stutt umfram allt að hafa gaman. í hlýðni er mikilvægt að vera þolinmóður, ekki verða pirraður ef hundurinn er ekki að ná árangri hratt, hundar geta fundið á sér ef stjórnandi er pirraður eða stressaður og því er mikilvægt að vera rólegur og taka sinn tíma og æfa jafnt og þétt og stundum þarf að fara til baka og hafa æfinguna léttari þótt hún hafi verið gerð erfiðari seinast. Eins með hlýðnina og sporið, gera stutt og endurtaka. Áttu einhver góð ráð til að hvetja fleiri unga krakka að byrja á þjálfun/halda áfram? Ekki flýta ykkur of mikið þetta tekur allt góðan tíma og þarf að vera þolinmóður með hundinn, ekki bera ykkur saman of mikið við aðra því það eru allir að æfa mis mikið og hundarnir eru líka allir mismunandi Jóhanna Þorbjörg Magnúsdóttir er lögreglumaður, hundaþjálfari og eigandi einangrunarstöðvarinnar Mósels. Hún er mikil dýramanneskja enda uppalin í sveit og fékk sinn fyrsta hund þegar hún var 15 ára. Hundurinn hennar, Morris var heiðraður sem þjónustuhundur ársins hjá HRFÍ 2018 fyrir störf sín sem björgunarhundur. Við fengum að spyrja Jóhönnu út í hundaþjálfun og hundaáhugann. Segðu okkur aðeins frá hver þú ert og hvað þú ert að gera með hundum í dag Ég vinn sem lögreglumaður og hef gert með hléum frá árinu 2007. Hundar hafa alltaf átt hug minn allan en ég fékk samt ekki hund sjálf fyrr en ég var orðin 15 ára ! Fyrir þann tíma hafði ég samt alltaf verið í kringum þá enda alin upp í sveit og var við tamningar og þjálfun á hrossum frá því að ég var barn. Í dag er ég búin að fara tvisvar erlendis í nám. Fyrst til Bandaríkjanna þar sem ég fékk mikla reynslu í þjálfun á vandamálahundum. Síðar fór ég á vegum lögreglunnar og sérhæfði mig í þjálfun hunda til efnaleitar. Í dag er ég eigandi af einangrunarstöðinni Mósel og þjálfa hunda til að finna myglu í húsum. Það er ýmislegt í farvatninu varðandi frekari vinnu í þeirri þjálfun en í dag er ég fyrst og fremst að grunnþjálfa hunda til áframhaldandi vinnu í efnaleit, ásamt því að vera í almennri kennslu í hundaþjálfun. Hvenær vaknaði áhuginn þinn á hundaþjálfun og afhverju ákvaðstu að feta þann veg? Þetta er góð spurning ! Ég hef fengið þessa spurningu áður og á í raun erfitt með að svara henni. Ég held að þetta hafi alltaf verið hluti af minni persónu. Ég er eðlisforvitin um hegðun, hvort heldur sem er dýra eða manna. Ég þrífst í rauninni ekki án þess að vera með hund mér við hlið og hef ekki gert í langan tíma. Göngutúrar án hunds finnst mér fáránleg hugmynd, reiðtúrar án hunds er bara eitthvað óeðlilegt og heimili án hunds er fyrir mér bara stillimynd fyrir húsgagnaljósmyndun..... Ég hef lagt gríðarmikla vinnu og fært miklar fórnir til þess að vera komin á þann stað sem ég er komin í dag. Að vera hundaþjálfari er frábært en vanþakklátt starf veraldlega. En ég myndi ekki vilja skipta því út fyrir neitt. Ég hvet alla sem hafa hæfileikann og áhugann til að skoða vel þann möguleika að velja sér þann farveg að leggja hundaþjálfun fyrir sig ! Hvaða hundur hefur haft mest áhrif á þig? Morris var minn fyrsti vinnuhundur. Hann var minn vinnufélagi sem leitarhundur hjá björgunarsveitinni alla sína tíð og mun aldrei neinn koma í hans stað. Hvernig hann leysti verkefni sem við stóðum frammi fyrir í fjölmörgum útköllum mun ég aldrei, með alla mína reynslu og þekkingu geta útskýrt. Hvenær á hundaþjálfun sér stað? Alltaf, allan daginn, alla daga ársins. Hvernig lærum við að lesa í hundinn? Með innsæi og auðmýkt er hægt að læra það. Reynslan kemur þar á eftir, þarnæst kemur nám. Hvað skiptir mestu máli þegar við þjálfum hunda? Aftur er það auðmýkt og viðhorfið gagnvart þér og öðrum persónulega. Ef við förum inn í þjálfunarstund með neikvæðu viðhorfi með lélegt sjálfstraust náum við aldrei árangri. Hundaþjálfun er til jafns vísindi og list. Aðferðir og rannsóknir breytast í sífellu og þurfum við alltaf að vera meðvituð um að við getum alltaf og munum alltaf læra meira. Mín reynsla er sú að því meira sem ég kann, get og skil því minna finnst mér ég vita um hundaþjálfun ! Hvernig eflum við sjálfstraust hunds almennt? Það er ekki hægt að svara þessari annars góðu spurningu með einföldum hætti. En mikilvægast er að hundurinn viti hvað hann á að gera og má gera – alltaf. Hundar eru mis viðkvæmir fyrir ófyrirsjáanleika og getur það haft alvarleg líkamleg og andleg áhrif ef við erum ekki að gefa skýr og einföld skilaboð. Svo hef ég stundum gefið þau ráð að hafa lífið 80% jákvætt sem felur í sér að setja upp æfingar sem þú veist að hundurinn getur leyst og fær umbun fyrir og 20% sem telja mætti neikvætt eða leiðréttingar. Þá þarf líka að passa að setja upp daglegt líf fyrir hundinn að sú hegðun sem rúmast innan 20% komi ekki upp með því að stjórna áreitinu. Dæmi um þetta er að ef hundur hefur þann leiða ávana að elta ketti, að fara ekki með hann í göngutúr framhjá Kattholti ;) Ertu með ráð fyrir byrjendur? Já – byrja ! Byrja að æfa sig og prófa sig áfram í þjálfun. |
Archives
February 2021
Categories |