Snærún Ynja Hallgrímsdóttir Smith er 16 ára ungur sýnandi og hundaþjálfari. Snærún hefur verið að æfa spora- og hlýðniþjáflun með German shepherd tíkina sína Áru ásamt því að sýna hana. Snærún tók þátt í sporaprófi með Áru í sumar og eru þær báðar í hópi yngstu þátttakenda sem hafa náð prófi í Spori I. Hvenær byrjaðir þú í hundunum? Fékk fyrsta hundinn minn þegar ég var sjö og byrjuðum við að sýna hana en fór í unga sýnendur þegar ég var 11 Hvað finnst þér skemmtilegast við að eiga hunda? Þeir eru bara svo skemmtileg dýr og góður félagsskapur Hvernig hund/hunda áttu? Ég á 5 labradora einn strák og fjórar stelpur og svo einn þýskan fjárhund Hvenær kviknaði áhugi á spora/hlýðni þjálfun? Hef alltaf haft smá áhuga á hlýðni en þegar ég fékk Áru (þýska fjárhundinn) hafði sú sem ég fekk hana hjá verið mjög sterk í hlýðni og spori og hún hvatti mig í að byrja æfa það Ertu búin að taka þátt í keppni í hlýðni og/eða spori? Hef tekið þátt í bæði spori og hlýðni, sporið gekk ágætlega en hlýðnin hefði mátt ganga betur, einnig þjálfaði ég hund í hundafimi og náðum við bronsi þar Hvaða hund ertu að keppa með í spori og/eða hlýðni, hvernig myndirðu lýsa honum? Er að keppa með Áru schefferinn minn, hún er mjög klár og fljót að læra og það er skemmtilegt að vinna með henni. Hún er aðeins 18 mánaða en stendur sig mjög vel Hvað æfið þið oft? Reynum að fara spora a.m.k einusinni í viku en við erum með fasta tíma þar sem við förum einusinni í viku að þjálfa hlýðni svo æfi ég þess á milli heima og í gönguferðum. Allt sem við gerum með hundunum okkar er partur af hlýðniþjálfun. Hvort sem það er að sitja og bíða eftir matnum eða liggja hjá mér á meðan ég er að læra heima Hvað finnst þér mikilvægast í þjálfuninni fyrir spor/hlýðni? Í spori er mikilvægt að gera þetta ekki of oft í einu þar sem þetta tekur mikið á fyrir hundana en fara þá frekar oftar í vikunni, æfa stutt umfram allt að hafa gaman. í hlýðni er mikilvægt að vera þolinmóður, ekki verða pirraður ef hundurinn er ekki að ná árangri hratt, hundar geta fundið á sér ef stjórnandi er pirraður eða stressaður og því er mikilvægt að vera rólegur og taka sinn tíma og æfa jafnt og þétt og stundum þarf að fara til baka og hafa æfinguna léttari þótt hún hafi verið gerð erfiðari seinast. Eins með hlýðnina og sporið, gera stutt og endurtaka. Áttu einhver góð ráð til að hvetja fleiri unga krakka að byrja á þjálfun/halda áfram? Ekki flýta ykkur of mikið þetta tekur allt góðan tíma og þarf að vera þolinmóður með hundinn, ekki bera ykkur saman of mikið við aðra því það eru allir að æfa mis mikið og hundarnir eru líka allir mismunandi
1 Comment
Svana amma
23/10/2020 06:27:10 am
Frábært þegar unga fólkið hefur ánæju að vera með dýrunum sínum.
Reply
Leave a Reply. |
Archives
February 2021
Categories |