Jóhanna Þorbjörg Magnúsdóttir er lögreglumaður, hundaþjálfari og eigandi einangrunarstöðvarinnar Mósels. Hún er mikil dýramanneskja enda uppalin í sveit og fékk sinn fyrsta hund þegar hún var 15 ára. Hundurinn hennar, Morris var heiðraður sem þjónustuhundur ársins hjá HRFÍ 2018 fyrir störf sín sem björgunarhundur. Við fengum að spyrja Jóhönnu út í hundaþjálfun og hundaáhugann. Segðu okkur aðeins frá hver þú ert og hvað þú ert að gera með hundum í dag Ég vinn sem lögreglumaður og hef gert með hléum frá árinu 2007. Hundar hafa alltaf átt hug minn allan en ég fékk samt ekki hund sjálf fyrr en ég var orðin 15 ára ! Fyrir þann tíma hafði ég samt alltaf verið í kringum þá enda alin upp í sveit og var við tamningar og þjálfun á hrossum frá því að ég var barn. Í dag er ég búin að fara tvisvar erlendis í nám. Fyrst til Bandaríkjanna þar sem ég fékk mikla reynslu í þjálfun á vandamálahundum. Síðar fór ég á vegum lögreglunnar og sérhæfði mig í þjálfun hunda til efnaleitar. Í dag er ég eigandi af einangrunarstöðinni Mósel og þjálfa hunda til að finna myglu í húsum. Það er ýmislegt í farvatninu varðandi frekari vinnu í þeirri þjálfun en í dag er ég fyrst og fremst að grunnþjálfa hunda til áframhaldandi vinnu í efnaleit, ásamt því að vera í almennri kennslu í hundaþjálfun. Hvenær vaknaði áhuginn þinn á hundaþjálfun og afhverju ákvaðstu að feta þann veg? Þetta er góð spurning ! Ég hef fengið þessa spurningu áður og á í raun erfitt með að svara henni. Ég held að þetta hafi alltaf verið hluti af minni persónu. Ég er eðlisforvitin um hegðun, hvort heldur sem er dýra eða manna. Ég þrífst í rauninni ekki án þess að vera með hund mér við hlið og hef ekki gert í langan tíma. Göngutúrar án hunds finnst mér fáránleg hugmynd, reiðtúrar án hunds er bara eitthvað óeðlilegt og heimili án hunds er fyrir mér bara stillimynd fyrir húsgagnaljósmyndun..... Ég hef lagt gríðarmikla vinnu og fært miklar fórnir til þess að vera komin á þann stað sem ég er komin í dag. Að vera hundaþjálfari er frábært en vanþakklátt starf veraldlega. En ég myndi ekki vilja skipta því út fyrir neitt. Ég hvet alla sem hafa hæfileikann og áhugann til að skoða vel þann möguleika að velja sér þann farveg að leggja hundaþjálfun fyrir sig ! Hvaða hundur hefur haft mest áhrif á þig? Morris var minn fyrsti vinnuhundur. Hann var minn vinnufélagi sem leitarhundur hjá björgunarsveitinni alla sína tíð og mun aldrei neinn koma í hans stað. Hvernig hann leysti verkefni sem við stóðum frammi fyrir í fjölmörgum útköllum mun ég aldrei, með alla mína reynslu og þekkingu geta útskýrt. Hvenær á hundaþjálfun sér stað? Alltaf, allan daginn, alla daga ársins. Hvernig lærum við að lesa í hundinn? Með innsæi og auðmýkt er hægt að læra það. Reynslan kemur þar á eftir, þarnæst kemur nám. Hvað skiptir mestu máli þegar við þjálfum hunda? Aftur er það auðmýkt og viðhorfið gagnvart þér og öðrum persónulega. Ef við förum inn í þjálfunarstund með neikvæðu viðhorfi með lélegt sjálfstraust náum við aldrei árangri. Hundaþjálfun er til jafns vísindi og list. Aðferðir og rannsóknir breytast í sífellu og þurfum við alltaf að vera meðvituð um að við getum alltaf og munum alltaf læra meira. Mín reynsla er sú að því meira sem ég kann, get og skil því minna finnst mér ég vita um hundaþjálfun ! Hvernig eflum við sjálfstraust hunds almennt? Það er ekki hægt að svara þessari annars góðu spurningu með einföldum hætti. En mikilvægast er að hundurinn viti hvað hann á að gera og má gera – alltaf. Hundar eru mis viðkvæmir fyrir ófyrirsjáanleika og getur það haft alvarleg líkamleg og andleg áhrif ef við erum ekki að gefa skýr og einföld skilaboð. Svo hef ég stundum gefið þau ráð að hafa lífið 80% jákvætt sem felur í sér að setja upp æfingar sem þú veist að hundurinn getur leyst og fær umbun fyrir og 20% sem telja mætti neikvætt eða leiðréttingar. Þá þarf líka að passa að setja upp daglegt líf fyrir hundinn að sú hegðun sem rúmast innan 20% komi ekki upp með því að stjórna áreitinu. Dæmi um þetta er að ef hundur hefur þann leiða ávana að elta ketti, að fara ekki með hann í göngutúr framhjá Kattholti ;) Ertu með ráð fyrir byrjendur? Já – byrja ! Byrja að æfa sig og prófa sig áfram í þjálfun.
0 Comments
Leave a Reply. |
Archives
February 2021
Categories |