Rallý hlýðni (e. rally obedience) er hunda íþrótt sem byggist á hefðbundinni hlýðni (e. obedience). Í rallý framkvæmir teymið, hundur og stjórnandi, mismunandi æfingar í fyrirfram uppsettri braut. Ólíkt hefðbundinni hlýðni, þar sem teymið bíður eftir skipun prófdómara fyrir hverja æfingu, heldur teymið áfram í brautinni sjálft á jöfnum og eðlilegum hraða. Hundurinn er staðsettur við vinstri hlið stjórnandans í brautinni, nema ef annað er tekið fram, í hámark hálfs meters fjarlægð frá honum. Í rallý er brautin saman sett af 10-20 skiltum með mismunandi æfingum. Æfingarnar eru framkvæmdar eins og skiltin í brautinni gefa til kynna um, með hundinn í hælstöðu. Áhersla er lögð á samvinnu hunds og stjórnanda í öllum æfingum og á milli æfinganna. Stjórnanda er leyft að hrósa, tala við, hvetja og nota hvaða munnlegu orð til hvatningar nema annað sé tekið fram í reglum. Stjórnandi má ekki snerta hundinn á meðan farið er í gegnum brautina. Í keppni byrjar teymið með 100 stig og dómari dregur af stig fyrir þær æfingar sem ekki eru nægilega vel framkvæmdar eða teymið gerir villur í brautinni, mismikið er dregið af fyrir mismunandi villur. Matið er heilt yfir ekki eins strangt og í hefðbundinni hlýðni. Keppt er í mismunandi flokkum og eru æfingarnar mismargar og miserfiðar eftir flokkum. Skiltin byggjast að stórum hluta á æfingunum; að setjast, leggjast og standa, sem eru framkvæmdar á mismunandi stöðum, í mismunandi röð og oftast í sambland við aðrar æfingar. Í mörgum æfingum þarf stjórnandinn að fá hundinn til að færa sig fyrir framan sig, aftur fyrir sig, í kringum sig eða yfir á hina hlið sína. Rallý byggir því mikið á samspili og leikni hunds og stjórnanda sem teymis. Rallý er hunda íþrótt sem auðvelt er að byrja að æfa sjálfur heima, inn í stofu eða úti í garði til dæmis, þar sem það þarf ekki endilega mikið pláss til að byrja með. Auðvelt er að byrja að æfa og kenna eina og eina æfingu og komast síðar í röð mismunandi æfinga í braut. Aðeins hefur verið byrjað að æfa rallý hlýðni hér heima en Vinnuhundadeild HRFÍ vinnur að þýðingu reglna fyrir rallý svo vonir standa um að hægt verði að efla og stækka íþróttina innan HRFÍ. Kynningarkvöld verður haldið á vegum Ungmennadeildar HRFÍ ef næg þátttaka næst. Fyrir áhugasama má finna hér að neðan áhugavert efni: Myndband sem sýnir framkvæmd á öllum skiltunum, einu í einu: https://www.youtube.com/watch?v=pIL3pcKEAh0 Myndband sem sýnir hund í rally braut í Danmörku: https://www.youtube.com/watch?v=-JEehK1C49U og https://www.youtube.com/watch?v=cT9g3ry41Ns Fleiri myndbönd er hægt að skoða hér td: https://www.youtube.com/results?search_query=Rally+Lydighed Öll skiltin sem samþykkt eru af NKU og útskýringu á ensku hvernig það er framkvæmt: https://www.dkk.dk/uploads/documents/Aktiviteter/Rally/THE-NORDIC-SIGNS-WITH-DESCRIPTION.pdf?fbclid=IwAR0wnIoAAqktE55aODppbPCuB356u9MtfHpKtan_HQvgTA-I5wrL-x0Gjvo
0 Comments
|
Archives
February 2021
Categories |