Valborg Óðinsdóttir er hundasnyrtir með margra ára reynslu. Hún er meðeigandi á hundasnyrtistofunni Dillirófu í Mosfellsbæ. Valborg ræktar og sýnir púðlur með frábærum árangri. Hún hefur alist upp með hundum frá unga aldri. Við fengum að spyrja hana nokkrar spurningar um feldhirðu og hvernig sé að vinna sem hundasnyrtir. Segðu okkur aðeins frá þér og hvað þú ert að gera ? Ég hef verið að klippa síðan 2008. Tók stutt 3 vikna námskeið hérlendis og þá var ekki aftur snúið. Ég hóf þá nám á Ítalíu í 3 mánuði þar sem var farið yfir grunninn í hundasnyrtingu og reytingu. Þetta var mjög krefjandi og skemmtilegt nám. Þegar ég kom síðan heim byrjaði ég að starfa við hundasnyrtingar og hef tekið námskeið í púðluklippingum hjá Anders Rosell. Ég var einnig að stofna loks mína eigin stofu ásamt meðeiganda mínum Önnu Dís Arnarsdóttur, hundasnyrtistofuna Dillirófu sem er staðsett í Mosfellsbæ. Við erum einnig að undirbúa skemmtileg feldnámskeið bæði fyrir byrjendur og lengra komna. Hvenær kviknaði áhuginn á snyrtingum hjá þér og afhverju ákvaðstu að velja þetta starf? Ég hef alltaf verið með brennandi áhuga á hundasportinu ásamt snyrtingum. Hundar hafa verið stór partur af lífinu mínu frá því ég var kornung. Ég ræktaði áður Ameríska cocker spaniel hunda og snyrti þá sjálf. Þegar Stefano Vesigno kom síðan til landsins að halda námskeið þá kviknaði enn meiri áhugi á snyrtingum. Það var þá sem ég sá að mig langaði að halda áfram á þessari braut og skráði mig í námið á Ítalíu. Á Ítalíu var mikið um púðlur sem komu í snyrtingu og þá heillaðist ég gjörsamlega að tegundinni og sérhæfði mig í þeim. Hvernig dílaru við stressaða eða hrædda hunda ? Þegar við tökum við slíkum hundum er nauðsynlegt að halda ró sinni allan tímann. Mikilvægt er að hafa rólegt og yfirvegað umhverfi. Best er fara hægt í hlutina og aldrei að sýna að maður sé sjálfur stressaður eða hræddur þar sem þeir eiga að finna fyrir trausti hjá snyrtinum. Hundurinn á að finna fyrir öryggi og að þetta er ekkert hættulegt. Best er að vera rólegur en þó ákveðinn. Oftast er gott að byrja að gera lítið í fyrstu snyrtingunni og auka það svo með hverri heimsókn. Hvernig kemuru í veg fyrir að vera ekki bitin eða klóruð af hundum? Það er alltaf séns að vera klóraður en til að komast sem mest hjá því þarf að hafa rétt handtök. Varðandi bit þá fer það eftir því hvort um er að ræða mjög hræddan/stressaðan hund eða hvort hundurinn sé hreint og beint grimmur. Ég reyni að komast hjá því að setja múla á hunda en það er stundum nauðsyn. Ef hundurinn er algjörlega brjálaður og hættulegur mér og jafnvel sjálfum sér þá þarf að meta hvenær á að halda áfram eða hætta snyrtingunni. Oftar en ekki er þetta í nösunum á þeim, það er best að sýna þeim enga athygli ef þeir eru að narta í mann þá oftast hætta þeir fljótt. Ég sem betur fer hef ekki lent í mjög slæmu dæmi ennþá, að minnsta kosti ekki það slæmu að ég náði ekki að klára snyrtinguna. Hvað spyrðu fólk að þegar það mætir með hund í snyrtingu? Ég byrja alltaf að spyrja fyrst og fremst um hvað á að gera, hvort eigi að raka eða klippa og hvort um sýninga- eða heimilishund sé að ræða. Tala um síddina, hversu mikið á að taka af. Spyr hvort eigi að halda sídd á eyrum eða skotti. Ég reyni eftir bestu getu að fá sem mestar upplýsingar um hvernig snyrtingin eigi að vera svo eigandinn verði sáttur. Ef manneskjan hefur ekki hugmynd þá ráðlegg ég henni og jafnvel sýni henni myndir af snyrtingum eftir mig af sömu eða svipaðri tegund. Ég spyr einnig um hvort hundurinn sé með einhver ofnæmi og ef hundurinn er mjög gamall þá um hvernig hjartað sé og hvort hann sé á einhverjum lyfjum. Ef fólk krefst þess að láta raka hunda með tvöfaldan feld, þá fer ég yfir hversu skaðlegt það getur verið og afleiðingar. Hver eru grunntólin sem fólk með feldhunda þyrfti að eiga? Ég myndi segja slicker bursta, stálgreiðu og pinnabursta ef þú ert með feldhund í fullri sídd. Gott sprey eftir hvernig feld hundurinn er með og auðvitað gott sjampó og næringu. Ekki má gleyma klóaklippum. Hvernig kemuru í veg fyrir að hundurinn þæfist? Með því að greiða reglulega, ef hundurinn er þurr að þá spreyja vel yfir hann og greiða síðan. Stálgreiðan á að geta farið alveg upp að húðinni og í gegnum hárin án þess að stoppa. Best er að baða reglulega og ef það er rigning að passa að þurrka hann vel þegar hann kemur inn til að hann þorni ekki með sand, greinar eða annan gróður í sér. Best er að leita sér ráða hjá ræktendum eða hundasnyrtum ef fólk lendir í vandræðum með flóka. Flestir eru mjög hjálpsamir og tilbúnir að aðstoða. Hvað finnst þér vera nauðsynlegt að hundasnyrtir búi yfir? Hundasnyrir þarf að hafa þekkingu og kunnáttu til að skila vel af sér hundinum þannig að hann sé snyrtur eins og beðið var um. Einnig er gott að hafa þekkingu á sem flestum hundategundum, ef ekki að afla sér þá þær upplýsingar. Hundasnyrtar þurfa að vera óhræddir, þolinmóðir og hafa góða aðstöðu og tól. Einhver ráð fyrir byrjendur með feldhunda? Fyrst og fremst að ráðfæra sig við ræktandann sinn eða sækja sér upplýsinga hjá ræktendum af sömu tegund. Einnig er gott að ræða við hundasnyrta og fá þar upplýsingar, jafnvel setja upp skipulag ef hundurinn á að fara í snyrtingu reglulega. Talað erum að best sé að fara með feldhunda í fullum feldi í snyrtingu vikulega alveg upp í á 3 vikna fresti, fer eftir hversu duglegur eigandinn er að hugsa um feldinn heima við. Ef hundurinn á ekki hins vegar að vera í fullum feldi er talað um að mæta með hann í snyrtingu á 6-8 vikna fresti.
0 Comments
|
Archives
February 2021
Categories |